Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2019 | 23:59

PGA: Nick Taylor efstur e. 1. dag á Shriners

Það er kanadíski kylfingurinn Nick Taylor sem er efstur eftir 1. hring Shriners Hospital for Children Open.

Taylor kom í hús á upphafsdegi mótsins á frábæru skori, 8 undir pari, 63 höggum.

Í 2. sæti er Brian Harman, 1 höggi á eftir.

Sjá má stöðuna á Shriners Hospital for Children Open með því að SMELLA HÉR:

Sjá má hápunkta 1. dags á Shriners Hospital for Children Open með því að SMELLA HÉR: