PGA: McGirt í forystu á Riviera fyrir lokahringinn – Hápunktar 3. dags
Það er bandaríski kylfingurinn William McGirt, sem leiðir eftir 3. dag á Riviera í Kaliforníu, þar sem Northern Trust mótið fer fram.
Hann er búinn að spila á samtals 12 undir pari, 201 höggi (69 67 65).
Á hæla hans koma landar hans George McNeil og Charlie Beljan, tveimur höggum á eftir, hvor.
Í 4. sæti eru Jason Alred og Brian Harman, á samtals 9 undir pari, hvor eða 3 höggum á eftir McGirt.
Allt eru þetta fremur óþekkt nöfn í 5 efstu sætunum. Það er ekki fyrr en í 6.-12..sæti sem sjást þekktari nöfn á við Jordan Spieth, Dustin Johnson, Bubba Watson, Cameron Tringale, Charl Schwartzel, Jimmy Walker, og forystumanninn í hálfleik Sang-Moon Bae en þeir eru allir á 8 undir pari, hver – 4 höggum á etir McGirt.
Það stefnir í spennandi lokahring á Northern Trust mótinu í kvöld, en enginn er búinn að hafa afgerandi forystu alla mótsdaganna og því undir hælinn lagt hver stendur uppi sem sigurvegari – þó líklegast sé að það einn af ofangreindu 12 kylfingum en þar af eru bandarískir kylfingar í 10 efstu sætunum og því eina raunhæfa spáin að það verði bandarískur kylfingur sem standi uppi sem sigurvegari.
Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag á Northern Trust SMELLIÐ HÉR:
Til þess að sjá hápunkta 3. dags á Northern Trust SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
