
PGA: Lee Westwood kominn áfram í 16 manna úrslit í heimsmótinu í holukeppni
Lee Westwood hefir loks tekist að komast í 16 manna úrslit, í World Golf Championships-Accenture Match Play Championship m.ö.o. í heimsmótinu í holukeppni í 12. tilraun sinni.
Hann þarfnast sigurs til þess að ná aftur 1. sæti heimslistans aftur úr höndum Luke Donald. Í gær vann hinn 38 ára Westwood, Robert Karlson 3&2 í 2. umferð á Dove Mountain, hjá Tucson.
Og Westwood þarf ekki að mæta Tiger Woods til þess að komast áfram.
Þrefaldur sigurvegari heimsmótsins í holukeppni (Tiger) missti nefnilega 2 metra fuglapútt á 18. holu og sigurinn var Nick Watney.
Rory McIlory er líka kominn áfram og gerir þ.a.l. líka atlögu að 1. sæti heimslistans. Það sem kom mest á óvart er að tveir Skotar komust í 16 manna úrslit, Paul Lawrie og Martin Laird , en þar mætast þeir því miður og spila gegn hvor öðrum um sæti í fjórðungsúrslitum.
„Hvað er að gerast?“ Þetta er ókannað land fyrir mig,“ sagði Westwood. „Ég spilaði mjög vel burt séð frá einum meiriháttar skólastráks andlegum mistökum. Nú hef ég tækifæri til hefnda.“
Westwood vann 4 af fyrstu 6 holunum í viðureigninni gegn Karlsson og var búinn að vinna 5. holuna þegar komið var á 10. holu.
Án þess að hafa fengið skolla á fyrstu 27 holunum þá urðu Lee á mistök á löngu 11. brautinni og það nýtti hinn högglangi, fyrrum liðsmaður Evrópu í Ryder Cup, (Robert Karlson) sér og fékk auk þess örn á 583 yarda (533 metra) 13. brautinni.
Westwood war í eyðimerkurkarganum eftir dræv sitt á 15. braut og Karlson þurfti ekki einu sinni að pútta til þess að vara allt í einu bara 2 holum á eftir Lee.
En par á næstu var nógu gott þegar Karlson komst ekki upp úr sandglompu og svo varð Westwood bara að bíða og sjá hvort Tiger hefði komist áfram í fjórðungsúrslitin. En það verður Nick Watney sem verður keppinautur Lee Westwood í 16 manna úrslitunum.
Heimild: europeantour.com
- febrúar. 23. 2021 | 22:00 Tiger lenti í bílslysi í Genesis GV80
- febrúar. 2. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jenny Sigurðardóttir – 2. febrúar 2021
- febrúar. 1. 2021 | 18:00 PGA: Reed sigraði á Farmers Insurance Open
- febrúar. 1. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hildur Kristín Þorvarðardóttir – 1. febrúar 2021
- febrúar. 1. 2021 | 08:00 Evróputúrinn: Casey sigraði á Omega Dubai Desert Classic
- janúar. 31. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Justin Timberlake – 31. janúar 2021
- janúar. 30. 2021 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (5/2021)
- janúar. 30. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Payne Stewart ——- 30. janúar 2021
- janúar. 29. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Erlingur Snær Loftsson – 29. janúar 2021
- janúar. 29. 2021 | 14:45 Evróputúrinn: Detry leiðir í hálfleik á Omega Dubai Desert Classic
- janúar. 28. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Þórður Sigurel Arnfinnsson – 28. janúar 2021
- janúar. 28. 2021 | 12:00 Greg Norman selur „húsið“ sitt í Flórída
- janúar. 27. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Bryce Moulder og Mike Hill – 27. janúar 2021
- janúar. 26. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Karine Icher —— 26. janúar 2021
- janúar. 26. 2021 | 07:30 PGA Championship fer fram í Southern Hills 2022 í stað Trump Bedminster