PGA: Kuchar og English sigruðu í Franklin Templeton Shootout
Matt Kuchar og Harris English sigruðu á Franklin Templeton Shootout, voru á 14 undir pari 58 höggum í gær á lokahringnum í scramblinu á sunnudaginn og settu nýtt vallarmet í mótinu.
Samtals voru Kuchar og English á 34 undir pari 182, og spiluðu síðustu 28 holurnar í Tiburon á 25 undir. Þeir hófu keppnina á 64 höggum á föstudeginum, þar sem hvor þeirra tók högg til skiptis og voru á 60 í betri bolta á laugardeginum.
Kuchar/English liðið átti 7 högg á þá Retief Goosen og Fredrik Jacobsen og jöfnuðu þar með líka mótsmetið á mesta mun á liði í 1. og 2. sæti, en fyrra met áttu þeir Curtis Strange og Mark O’Meara og settu þeir það í 1. Fredrik Templeton mótinu árið 1989.
„Þetta var skemmtileg vika,“ sagði Kuchar . „Þetta er eitt af uppáhaldsmótum mínum á árinu. Ég vildi óska að það væru fleiri liðakeppnir. Ég geri mér grein fyrir að það er erfitt að blanda saman mismunandi keppnisformum á árinu en það að vera með félaga er skemmtilegt. Það er gaman að standa sig vel.“
Kuchar og English, sem kom í stað meidds Brandts Snedeker unnu sér inn $385,000.
„Þetta er svo afslappað mót,“ sagði Harris. „Það er virkilega svalt að vera hluti af þessu móti.“
Goosen og Jacobsen luku keppni á 61 höggi, en áttu lítinn möguleika á að ná sigurvegurunum.
„Þetta var ótrúlegt, þvílík sýning,“ sagði Jacobson. „Báðir voru að pútta vel og þeir eru pottþéttir í slættinum, þannig að við urðum að bæta leik okkar. En þeir spiluðu svo vel að það var bara ekkert hægt að gera.“
Lee Westwood og Ian Poulter voru á 59 höggum og urðu í 3. sæti og Chris DiMarco og Billy Horschel voru í 4. sæti.
Til þess að sjá lokastöðuna á Franklin Templeton Shootout SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
