Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 12. 2014 | 00:45

PGA: Kaymer sigurvegari The Players 2014!

Þýski kylfingurinn Martin Kaymer var nú rétt í þessu að innsigla sigurinn á The Players meistaramótinu, móti sem margir nefna 5. risamótið.

Kaymer lék Stadium völlinn á TPC Sawgrass á samtals 13 undir pari, 275 höggum (63 69 72 71).  Hann setti niður stórglæsilegt pútt á 17. flöt, sem segja má að hafi tryggt honum sigurinn og sjá má með því að SMELLA HÉR: 

Í 2. sæti varð Jim Furyk á samtals 12 undir pari, 276 höggum, 1 höggi á eftir Scott og í 3. sæti varð Sergio Garcia enn öðru höggi á eftir.

Til hins margumtalaða einvígi milli Kaymer og Spieth kom aldrei, því Kaymer tók svo fljótt forystuna og lét hana aldrei af hendi.

Jordan Spieth varð í fjórða sæti ásamt Justin Rose, báðir á samtals 10 undir pari, hvor, 3 höggum á eftir Kaymer.

Meðal helstu frétta úr mótinu er einnig að Adam Scott tókst ekki að velta Tiger úr 1. sæti heimslistans, en hann átti ekkert sérstakan lokahring, lék á 73 höggum Samtals var Scott á 2 undir pari, (77 67 69 73) og deildi 38. sætinu í mótinu ásamt 9 öðrum kylfingum, þ.á.m. fyrrum nr. 1 á heimslistanum, Luke Donald.

Til þess að sjá lokastöðuna á The Players SMELLIÐ HÉR: 

Til þess að sjá hápunktana á lokadegi The Players SMELLIÐ HÉR: