Ragnheiður Jónsdóttir | október. 6. 2012 | 04:00

PGA: Jonas Blixt og Brendon de Jonge í efsta sæti á JT Shriners Open – hápunktar og högg 2. dags

Það eru Svíinn Jonas Blixt og Brendon de Jonge frá Suður-Afríku, sem deila 1. sæti á Justin Timberlake Shriners Open.

Báðir eru þeir búnir að spila á 14 undir pari, samtals 128 höggum; Blixt (64 64) og de Jonge (62 66).

Blixt og de Jonge hafa hins vegar aðeins litla forystu því aðeins 1 höggi á eftir er forystumaður gærdagsins Ryan Moore á samtals 13 undir pari, 129 höggum (61 68).

Fjórða sætinu deila síðan þeir Daníel Summerhayes og Tim Herron báðir tveimur höggum á eftir á 12 undir pari, 131 höggi; Summerhayes (68 63) og Herron (63 68).

Summerhayes, John Daly og Vijay Singh voru á besta skori gærdagsins 8 undir pari eða 63 höggum og tveir þeir síðarnefndu deila einmitt 6. sætinu ásamt 3 öðrum kylfingum.

Til þess að sjá nánar stöðuna eftir 2. dag JT Shriners Open SMELLIÐ HÉR:

Til þess að sjá hápunkta 2. dags á JT Shriners Open SMELLIÐ HÉR: 

Til þess að sjá högg 2. dags á JT Shriners Open, sem Robert Garrigus átti SMELLIÐ HÉR: