Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 8. 2016 | 12:00

PGA: Jim Furyk á 58 höggum á lokahring Travelers!!!

Jim Furyk lék lokahring Travelers mótsins á glæsilegum 58 höggum!

Á þessum stórglæsilega hring fékk Furyk, sem frægur er fyrir fremur sérstaka sveiflu 1 örn, 10 fugla og 7 pör.

„Mér fannst eins og einhver annar kæmi í líkama minn og væri að sveifla fyrir mig,“ sagði Furyk að glæsihringnum loknum.

„Ég var ekkert að slá neitt sólíd. Ég notaði dræver 12 sinnum í gær og boltinn var á braut 5 sinnum.  Þetta er bara ekki – þetta er ekki styrkleiki minn.“

Eini sveifluþjálfari sem Furyk hefir verið hjá er pabbi hans. Furyk lauk leik T-5 á 11 undir pari, 269 höggum.

Sjá má hápunkta frá frábærum hring Furyk með því að SMELLA HÉR: 

Sjá má úrslitin á Travelers með því að SMELLA HÉR: