Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 28. 2012 | 23:30

PGA: Jason Dufner leiðir fyrir lokadag Zürich Classic

Jason Dufner leiðir á Zürich Classic of New Orleans mótinu fyrir lokahringinn, sem spilaður verður á morgun. Samtals er Dufner búinn að spila á -17 undir pari, samtals 199 höggum (67 65 67).  Hann hefir 2 högga forystu á þann sem næstur kemur en það er Graeme DaLaet frá Kanada. DaLaet er búinn að spila á -15 undir pari, samtals 201 höggi (68 67 66).

Þriðja sætinu deila þeir Ernie Els og John Rollins á -14 undir pari hvor. Í fimmta sæti eru 3 Bandaríkjamenn: Ryan Palmer, Steve Stricker og Cameron Tringale, allir á -13 undir pari hver.

Áttunda sætinu deila síðan þeir Ken Duke og nr. 2 í heiminum Luke Donald, á -12 undir pari, hvor.

Til þessa sjá stöðuna eftir 3. dag Zürich Classic of New Orleans mótinu smellið HÉR: