Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 28. 2015 | 08:00

PGA: Harman efstur á Travelers f. lokahringinn

Það er bandaríski kylfingurinn Brian Harman sem leiðir fyrir lokahringinn á Travelers Championship í Conneticut.

Harman er búinn að spila á samtals 14 undir pari, 196 höggum (66 65 65).

Það eru 2 sem deila 2. sætinu: Bubba Watson og kanadíski kylfingurinn Graeme DaLaet, en báðir eru aðeins 1 höggi á eftir Harman, á samtals 13 undir pari, hvor.

Þrír kylfingar Brandt Snedeker, sem búinn er að gefa út að hann verði ekki með í Greenbriars í næstu viku, Paul Casey og Zach Johnson deila síðan 4. sætinu.

Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag Travelers SMELLIÐ HÉR: