
PGA: Claxton, Owen og Summerhayes leiða þegar Mayakoba Golf Classic er hálfnað
Meðan að öll stóru nöfnin í golfheiminum spila á Accenture heimsmótinu í holukeppni eru það þeir sem ekki hljóta þátttökurétt þar, eins og t.d. flestir nýliðarnir á PGA, sem fá að skína á Mayakoba Golf Classic mótinu, sem fram fer í El Camaleon, á Riviera Maya í Mexíkó.
Það eru einmitt nýju strákarnir á PGA, sem leiða: Englendingurinn Greg Owen (Golf 1 var nýlega með kynningu á honum, sem sjá má HÉR:); Daniel Summerhayes (Golf 1 var nýlega með kynningu á honum, sem sjá má HÉR:) og Will Claxton (Golf 1 var nýlega með kynningu á honum, sem sjá má HÉR:). Allir hafa þeir Claxton, Owen og Summerhayes spilað á -8 undir pari, 134 höggum.
Í 4. sæti er Chris Stroud höggi á eftir forystunni og 5. sætinu deila Svíinn Richard S. Johnson, Bandaríkjamaðurinn Kevin Stadler og Ástralinn Robert Allenby, á samtals -6 undir pari.
Enn einn af nýju strákunum á PGA túrnum John Huh (sjá kynningu Golf 1 á honum HÉR: ) er síðan í 8. sæti á samtals -5 undir pari.
Til þess að sjá stöðuna á Mayakoba Golf Classic eftir 2. dag smellið HÉR:
- júní. 7. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Stefanía M. Jónsdóttir – 7. júní 2023
- maí. 19. 2023 | 19:00 GKS: GA tekur við rekstri Siglo Golf
- maí. 19. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingjaldur Valdimarsson – 19. maí 2023
- apríl. 18. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Þórey Petra ——– 18. apríl 2023
- apríl. 17. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ragna Björk Ólafsdóttir – 17. apríl 2023
- apríl. 16. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingi Rúnar Birgisson – 16. apríl 2023
- apríl. 15. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (15/2023)
- apríl. 15. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Gerða Hammer og Finnbogi Haukur Alexandersson – 15. apríl 2023
- apríl. 14. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hlín Torfadóttir —— 14. apríl 2023
- apríl. 13. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jónína Ragnarsdóttir – 13. apríl 2023
- apríl. 12. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Björg Egilsdóttir – 12. apríl 2023
- apríl. 11. 2023 | 17:00 Masters 2023: Ný met Mickelson á Masters
- apríl. 11. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ágúst Elí Björgvinsson – 11. apríl 2023
- apríl. 11. 2023 | 09:00 Masters 2023: Nokkrar skemmtilegar staðreyndir um Masters
- apríl. 10. 2023 | 20:00 25.000 fréttir skrifaðar á Golf1