PGA: Graeme McDowell leiðir fyrir lokahringinn á World Challenge – hápunktar og högg 3. dags
Það er Norður-Írinn, Graeme McDowell, sem leiðir á móti Tiger Woods í Sherwood golfklúbbnum í Thousand Oaks, Kaliforníu, eftir 3. hring World Challenge mótsins.
McDowell er samtals búinn að spila á 13 undir pari, 203 höggum (69 66 68).
Hann og Keegan Bradley eru búnir að stinga hina af en Bradley er samtals búinn sð spila á 11 undir pari, 205 höggum (69 69 67) og er því samt 2 höggum á eftir McDowell.
Í 3. sæti er Tiger Woods á samtals 8 undir pari, 208 höggum (70 69 69) heilum 5 höggum á eftir GMac. Tiger var með 4 fugla, 13 pör og 1 skolla á skorkorti sínu í dag – 69 högg! Þar með kom hann sér sem segir í 3. sætið, sem hann deilir ásamt landa sínum Bo Van Pelt.
Stærsta stökkið á skortöflunni á World Challenge tók Bubba Watson. Sá örvhenti skilaði skori upp á 67 högg og stökk úr 16. sætinu sem hann var í þ.e. 3. neðsta sætinu í 8. sætið. Í 18. og síðasta sæti er síðan Jason Day á samtals 2 yfir pari.
Til þess að sjá stöðuna í heild eftir 3. dag World Challenge SMELLIÐ HÉR:
Til þess að sjá hápunkta 3. dags á World Challenge SMELLIÐ HÉR:
Til þess að sjá högg 3. dags á Wolrd Challenge, sem Tiger Woods átti SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
