Dustin Johnson (DJ) PGA: Dustin Johnson næstefstur e. 1. dag Houston Open – Hoff í 1. sæti
Sleggjan Dustin Johnson er á höttunum eftir fyrsta sigri sínu á þessu keppnistímabili og hann byrjaði vel í gær á móti vikunnar á PGA Tour, Shell Houston Open.
Sérlega spilaði hann lokaholurnar glæsilega lauk hringnum á að fá örn og fugl.
DJ eins og hann er oft kallaður (31 árs) sökkti 10 feta pútti á par-5 8. brautinni (næstsíðustu holu hans þann dag) fyrir erni áður en hann setti niður 6 metra pútt frá flatarkanti fyrir fugli á 9. holunni og lauk hringnum á 65 höggum í Humble, Texas þar sem mótið fer fram.
Johnson deilir 2. sætinu ásamt þeim Roberto Castro, Scott Brown og Morgan Hoffmann. Fjórir aðrir Bandaríkjamenn eru aðeins 1 höggi á eftir DJ, þ.e. þeir Johnson Wagner, Justin Hicks, Scott Pinckney og Chez Reavie sem allir léku á 66 höggum.
Sá sem er í efsta sæti er Charley Hoffman, (eða the Hoff eins og hann er oft kallaður) á 64 höggum.
Eftir hringinn sagði DJ, sem var ánægður að vera í hóp efstu eftir hringinn: „Þetta var frábær dagur, allt í allt var þetta frábær dagur. Ég var aðeins með 2 skolla og annar þeirra var leðjubolti á 5. (holu). Ég sló gott högg en boltinn festist í leðju og ég sló til vinstri því hann var í slæmri legu og gat ekki bjargað þessu. Svo var vítahögg á par-5 13. holu (4. hola DJ í gær). En að öðru leyti fannst mér ég leika býsna stöðugt í dag og setti niður nokkur falleg pútt,“ sagði DJ að lokum.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
