Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 4. 2016 | 00:30

PGA: DJ sigraði á Bridgestone! – Hápunktar lokahrings

Það var sigurvegari Opna bandaríska, Dustin Johnson (oft nefndur DJ) sem var sjóðheitur á Bridgestone Invitational mótinu og stóð í lokin uppi sem sigurvegari, í gær sunnudaginn, 3. júlí 2016.

Sigurskor DJ var 6 undir pari, 274 högg (69 73 66 66).

Í 2. sæti, aðeins 1 höggi á eftir varð bandaríski kylfingurinn Scott Piercy, á samtals 5 undir pari.

Þriðja sætinu deildu síðan 4 frábærir stjörnukylfingar: nr. 1 á heimslistanum Jason Day, nr. 2 á heimslistanum Jordan Spieth, kylfingurinn síbrosandi Matt Kuchar (17. sæti heimslistans) og Kevin Chappell, sem er í 38. sæti heimslistans og færist eflaust eitthvað ofar eftir þennan glæsilega árangur á Bridgestone heimsmótinu.

Til þess að sjá hápunkta lokahrings Bridgestone Inv. SMELLIÐ HÉR: 

Til þess að sjá lokastöðuna á Bridgeston Inv. SMELLIÐ HÉR: