Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 26. 2018 | 23:00

PGA: DeChambeau sigraði á Northern Trust!

Það var Bryce DeChambeau sem stóð uppi sem sigurvegari á Northern Trust Open.

Sigurskor DeChambeau var 18 undir pari, 266 högg (68 66 63 69).

Þetta var 3. PGA Tour sigu DeChambeau og hann var býsna sannfærandi því hann átti heil 4 högg á þann sem kom í 2. sæti, Tony Finau, sem var á samtals 14 undir pari, 270 höggum (69 67 66 68).

Billy Horschel og Ástralinn Cameron Smith deildu síðan 3. sætinu á samtals 13 undir pari, hvor.

Til þess að sjá lokastöðuna á Northern Trust Open SMELLIÐ HÉR:

Til þess að sjá hápunkta lokahrings Northern Trust Open SMELLIÐ HÉR: