Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 25. 2018 | 23:00

PGA: DeChambeau efstur f. lokahring Northern Trust

Það eru miklar sviptingar á toppnum á Northern Trust Open, sem er mót vikunnar á PGA Tour.

Í efsta sæti fyrir lokahringinn er Bryce DeChambeau frá Bandaríkjunum.

Hann hefir spilað á samtals 16 undir pari, 197 höggum (68 66 63) og færist í aukanna með hverjum hring.

Í 2. sæti er Keegan Bradley búinn að tylla sér á 12 undir pari og 3. sætinu deila þeir Cameron Smith frá Ástralíu og hinn bandaríski Tony Finau, báðir á samtals 11 undir pari

Til þess að sjá stöðuna á Northern Trust Open eftir 3. dag SMELLIÐ HÉR: 

Til þess að sjá hápunkta 3. hrings á Northern Trust Open SMELLIÐ HÉR: