Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 14. 2014 | 20:00

PGA: Daly með yips og á 90 á Valspar mótinu

John Daly hefir spilað í 17 samfelld ár á PGA Tour og alltaf átt einn hring upp á 80 högg eða meira. En hann fór langt yfir 80 högg á  Valspar Championship í dag, þegar honum brást rúmlega 1 meters pútt fyrir 89 á lokaholu Innisbrook resort og niðurstaðan hæsta skor ferilsins 90 högg.

„Ég gafst ekkert upp,“ sagði Daly jákvæður eftir hringinn hryllilega.  „Ég reyndi!“

Hann notaði 12 högg á par-4 16. holunni – og jafnaði þar með 4. hæsta skor sitt á eina holu – en var miklu meira uppteknari af því að hann er kominn með yips þegar hann púttar.  Daly sagðist hafa byrjað að fá  yips-ið á sunnudeginum í Puerto Rico og náði lægsta punkti sínum í Innisbrook. (Innskot: Yips er þegar hendur púttara skjálfa eða koma allt í einu ósjálfráðir kippir – yips felur m.a. í sér missi fínhreyfinga , sem gerir öll pútt erfið).

Daly tók 70 pútt samtals á 2 dögum, þ..á.m. 4-pútt á 2. holunni í dag á 2. hring Valspar mótsins.

„Maður var bara með há skor á holunum,“ sagði Daly. „Það er bara svona sem golfið er.  En þegar maður er með yips er  ekkert gaman!“

Það var svo sannarlega ekkert gaman á 2. hringnum á Valspar hjá Daly sérstaklega á 16. holunni.

Hann byrjaði á því að dræva í vatnshindrun. Hann átti eftir 270 yarda (247 metra) til þess að komast yfir vatnið eftir vítadropp sitt en mistókst tvisvar. Síðan húkkaði hann til vinstri og þurfti síðan að nota 3 chip til þess að komast inn á flöt þar sem hann þurfti bara 1 pútt og niðurstaðan 12 högg á 1 holu!

Hæsta skor Daly á 1 holu voru 18 högg á 6. holu á Bay Hill Invitational árið 1998. Þetta (í dag) var þó skárra en það a.m.k. sló hann aðeins 3 sinnum í vatnið.

„Ég tók tvö góð dropp og hitti 3-tréð á hælinn í vatnið,“ sagði hann. „Síðan sjankaði ég með 7-járninu, chippaði, gróf boltann, þannig að ég náði honum ekki út…. þetta voru góð 12 högg. Ég reddaði 12!“

Þetta er í 16 sinn á PGA Tour sem Daly hefir verið á skori á 1 holu sem er 10 högg eða meira. Nú í dag, föstudaginn 14. mars var 1 ár frá því hann var síðast á svona risaskori .

Bara á PGA Tour hefir Daly verið 82 sinnum á skori upp á 80 eða hærra.

Daly sagði að hann yrði að fá aðstoð með yips-ið eftir það sem hefir verið hræðilega slæm vika. Hinn 47 ára tvöfaldi risamótssigurvegari sagði að hann hefði verið í meðferð vegna plantar fasciitis bólgu í vinstri hæl á miðvikudeginum og hann hefði því haltrað um völlinn.

„Ég er allur að brotna í sundur“ sagði hann.

Púttin pirruðu Daly. Daly var með einhverjar mýkstu hendur í golfinu þegar hann sigraði á PGA Championship 1991 og Opna breska 1995 á St. Andrevs. En púttstrokan hans hefir komið ver út fyrir Daly en jafnvel olnboga skurðaðgerðin sem hann var í á s.l. ári. Hann átti góða möguleika að sigra í  American Express Championship 2005 í  Harding Park, þegar hann setti niður 5 metra pútt og knúði fram umspil við Tiger.

„Þetta er í hausnum á mér í höndunum og ég get ekki stoppað það,“ sagði Daly. „Í stuttri stroku er ég of hraður. Í venjulegu, löngu strokunni minni kem ég upp. Jafnvel fæturnir á mér hreyfast. Ég ætti að vera í spennitreyju, reyna það. Ég hef alltaf verið of fljótur í púttunum þannig að ég ætti ekki að fá yips. En ég er með það og ég er illilega með það!

Daly hefir verið að leika á undanþágu styrktaraðila s.l. 8 ár var ekkert viss hvenær hann myndi spila næst.