Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 11. 2015 | 06:30

PGA: Fyrsti PGA Tour sigur Cejka kom á Puerto Rico Open

Þýski kylfingurinn Alex Cejka sigraði á the Puerto Rico Open s.l. sunnudag 8. mars 2015 og er þetta fyrsti PGA Tour titill hans, en titilinn hlaut hann eftir að hann setti niður 15 feta birdiepútt á fyrstu holu 5 manna bráðabana.

Hinn 44 ára tékknesk ættaði Cejka sigraði í 287. móti sínu á PFA Tour.

Á ferli sínum hefir hann unnið 4 sinnum á Evróputúrnum.

Hann fékk fugl á 4 fyrstu af 6 holum sínum og lauk lokahringnum á 3 undir pari, 69 höggum í mjög rigninga- og vinda- sömum skilyrðum á Trump International-Puerto Rico.

„Ég er orðlaus“ sagði Cejka þegar úrslitin lágu fyrir. „Ég er ánægður að þessu er lokið.  Þetta hefir verið erfið og hörkuvika. Fyrsti sigurinn er alltaf sá erfiðasti …. Þessir gæjar eru góðir. Ég meina  svona er þetta auglýst.  A.m.k. get ég sagt að ég hafi spilað í langan tíma á PGA Tour og sigrað.  Þannig að þetta er góð lína sem ég get notað þegar ég fer á eftirlaun og hætti.“

Sam Saunders, barnabarn golfgoðsagnarinnar Arnold Palmer‘hafði tækifæri á að knýja fram aðra holu bráðabanans en 2,5 metra pútt hans á par-5 18. holunni fór hægra megin framhjá holu. s grandson, had a chance to force another playoff hole, but his 8-foot birdie try on the par-5 18th went to the right.

Til þess að sjá lokastöðuna á Puerto Rico Open SMELLIÐ HÉR: