Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 29. 2015 | 06:45

PGA: Bubba sigraði á Travelers

Það var bandaríski kylfingurinn Bubba Watson, sem er Masters meistari 2012 og 2014, sem stóð uppi sem sigurvegari á Travelers Championship á TPC River Highlands í Cromwell Conneticut.

Bubba lék á samtals 16 undir pari líkt og enski kylfingurinn Paul Casey og því varð að koma til bráðabana milli þeirra.

Par-4 18. holan var spiluð tvívegis – það dugði því Bubba vann í 2. sinn sem holan var spiluð með fugli.

Í 3. sæti var forystumaður 3. dags Brian Harman á 15 undir pari.

Til þess að sjá lokastöðuna á Travelers SMELLIÐ HÉR: 

Til þess að sjá hápunkta lokahrings Travelers SMELLIÐ HÉR: