Axel Bóasson, GK. Mynd: Golf 1.
Bandaríska háskólagolfið: Axel, Haraldur og Mississippi State luku leik í 2. sæti í Flórída
Axel Bóasson, GK og Haraldur Franklín Magnús, GR, tóku þátt í Seminole Intercollegiate mótinu, sem fram fór á Southwood golfvellinum í Tallahassee, Flórída. Sjá má völlinn sem þeir Axel og Haraldur Magnús spiluðu á, á heimasíðu klúbbsins, með því að SMELLA HÉR: Þess mætti geta að völlurinn hefir verið valinn einn af 35 bestu golfvöllum Bandaríkjanna af Golf Magazine.
Þetta var þriggja daga mót, frá 15.-17. mars og þátttakendur voru 66 frá 11 háskólum.
Axel lék á samtals 3 undir pari, 213 höggum (68 71 74) og deildi 11. sætinu í mótinu í einstaklingskeppninni ásamt Hank Lebioda frá Florida State háskólanum.
Þetta var fyrsta mót Haraldar Magnúsar á árinu, en hann lék á samtals 9 yfir pari, 225 höggum (74 77 74) og deildi 44. sætinu með 2 öðrum.
Lið Mississippi State hafnaði í 2. sæti í liðakeppninni, sem er glæsilegur árangur!!! Næsta mót liðsins er Bancorp South Reunion Intercollegiate, sem fram fer á Old Waverly (uppáhaldsgolfvelli Axels erlendis) í Mississippi, 1.-2. apríl n.k.
Til þess að sjá úrslitin á Seminole Intercollegiate SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
