PGA: 9 kylfingar sem þarfnast sárlega sigurs á PGA Tour 2018 (1/3)
Á undanförnum árum höfum við séð leikmenn á PGA Tour sem hafa risið hratt upp á stjörnuhiminn með sigri og síðan hefir ekkert spurst til þeirra. Eða þeir hafa stöðugt verið nálægt því að sigra en aldrei almennilega tekist að næla í sigurinn. Það sem sagt er um þá er að þeir þarfnist sigurs sárlega eða „að tími væri kominn á sigur þeirra.“
Kylfingar eins og Kevin Chappell, Pat Perez, Kyle Stanley og Kevin Kisner koma upp í hugann. Þeir eiga það sameiginlegt að sagt var um þá að tími væri kominn á þá (að sigra).
Hér á eftir verður getið fyrstu 3 kylfinga af 9 sem tími er kominn á (umfjöllun um hina 6 birtist í 2 öðrum greinum hér að Golf 1).
Taka verður þó fram um lista þessara 9 kylfinga:
*Enginn sem hefir unnið utan Bandaríkjanna er á listanum. Þó Tommy Fleetwood, Alex Noren, og Tyrell Hatton vanti sárlega sigur á PGA Tour þá sigruðu þeir utan Bandaríkjanna 2016-’17.
• Sigurvegarar 10 eða fleiri móta á PGA Tour geta varla talist sárlega vanta það að sigra. Þannig að þó Jason Day og Rory McIlroy hafi gengið eyðimerkurgöngu sigurlega séð þá eru góðar líkur á að þeir jafni sig og snúi aftur á sigurpall fyrr eða síðar.
• Engir nýliðar eru í upptalningu þessara 9. Það er aðeins tímaspursmál hvenær „nýju strákarnir á PGA“ slá í gegn; menn eins og t.d. Keith Mitchell eða Peter Uihlein. Titleist erfinginn Uihlein sigraði líka á Web.com Tour í september sl.
En hér verður fjallað um fyrstu 3 af 9 sem telja verður að tími sé kominn á að sigri á PGA Tour – vonandi verður breyting á 2018:
1 Paul Casey
Það er næstum því ótrúlegt að Casey hafi aðeins 1 sinni unnið á PGA Tour á ferli sínum og sá sigur kom 2009 á Shell Houston Open. Það er því kominn tími á Casey. Paul Casey hefir sigrað 13 sinnum á Evróputúrnum en eitthvað hefir staðið á sigrunum á PGA Tour. Frá því Casey ákvað að snúa fókus sínum á PGA Tour 2015 hefir hann verið í 7. sæti eða gert betur 19 sinnum í 73 mótum þ.á.m. tvívegis verið í bráðabana um sigursæti þ.e. á Genesis Open og the Travelers Championship. Ef hann heldur þessu áfram hlýtur að koma að sigri – jafnvel sigri í risamóti, en honum hefir aldrei tekist að sigra í einu slíku.
2 Bubba Watson
Fyrsta hugsunin hér er eflaust er Bubba ekki löngu kominn með 10 sigra á PGA Tour? Nei það er hann ekki og er sigurlaus 2017 sem margir skrifa á skrítinn samning hans að spila með Volvik boltum. Nú er sá samningur liðinn undir lok og kannski Bubba sigri sinn 10. sigur á PGA Tour 2018?
3 Matt Kuchar
Sá þriðji sem nefndur er til sögunnar er Matt Kuchar en hann hefir ekki unnið í móti fra því á á RBC Heritage 2014. Kannski hans tími sé kominn?
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
