Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 24. 2018 | 07:00

PGA: 4 tiltölulega óþekktir efstir e. 1. dag Northern Trust

Það eru 4 kylfingar efstir og jafnir á móti vikunnar á PGA Tour Northern Trust Open.

Þetta eru bandarísku kylfingarnir Jamie Lovemark, Sean O´Hair, Kevin Tway og Vaughn Taylor.

Þeir hafa allir spilað á 5 undir pari 67 höggum.

Þetta eru e.t.v. ekki þekktustu kylfingarnir á PGA Tour og má sjá eldri kynningar Golf1 á þeim hér (smellið á nafn viðkomandi kylfings Jamie Lovemark; Sean O´Hair 1 og Sean O´Hair 2; Kevin Tway og Vaughn Taylor.

Hópur 13 kylfinga er 1 höggi á eftir þ.á.m. þeir Hideki Matsuyama, Dustin Johnson og Brooks Koepka.

Til þess að sjá stöðuna á Northern Trust að öðru leyti SMELLIÐ HÉR: 

Til þess að sjá hápunkta 1. dags á Norther Trust SMELLIÐ HÉR: