Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 3. 2015 | 06:00

Patrick Reed bregðst við ásökunum um að hann hafi svindlað og stolið

Patrick Reed birti fréttatilkynningu á Golf Channel í gær, mánudaginn 2. febrúar 2015, eftir að bók kom út í s.l. viku, sem lýsti Reed, 24 ára, svo að hann væri keppandi sem væru öll meðul rétt svo framarlega sem hann sigraði og var auk þess ásakaður af fyrrum félögum sínum í háskólagolfinu um að hafa svindlað og stolið.

Í yfirlýsingu sem umboðsfyrirtæki Reed, IMG, lét frá sér fara, sagði m.a.: „Ásakanirnar gegn mér voru alvarlegar og voru ætlaðar að eyðileggja orðspor mitt og karakter. Þessu mun ekki verða tekið af neinum léttleika.  Lið mitt og fulltrúar eru að líta í alla kima þessa máls og við hlökkum til að rétta hlut minn.“

En sem stendur ætla ég að einbeita mér að lífi mínu í núinu; því að vera eins góður eiginmaður, faðir og kylfingur og ég get framast orðið.

Í bókinni, sem áætlað er að komi út í maí, skrifaði höfundurinn Shane Ryan m.a. að hinn 4-faldi sigurvegari á PGA Tour (Reed) gerði yfirleitt lítið úr hæfileikum annarra og hefði verið svo óvinsæll meðal félaga sinna í Augusta State að þeir hefðu vonast til að hann tapaði leik sínum í úrslitaleik NCAA Championship.

Það sem var mest skemmandi í frásögn Ryan voru hins vegar ásakanirnar um að Reed hefði svindlað í úrtökumótum og hefði stolið frá liðsfélögum sínum á háskólaárum þeirra í Georgia.

Reed er ekki meðal keppenda í PGA Tour móti þessarar viku, þ.e. Farmers Insurance Open.