Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 10. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Jón Otti Sigurjónsson, Ragnar Már Ríkharðsson og Steinar Páll Ingólfsson – 10. febrúar 2015

Afmæliskylfingar dagsins eru Steinar Páll Ingólfsson, GK Ragnar Már Ríkharðsson, GM og Jón Otti Sigurjónsson, GO.  Steinar Páll er fæddur 10. febrúar 1990 og á því 25 ára stórafmæli í dag.  Steinar Páll er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Komast má á facebooksíðu Steinars Páls til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan Steinar Páll Ingólfsson, GK 10. febrúar 1990 (25 ára)  Innilega til hamingju með stórafmælið!!! Jón Otti er fæddur 10. febrúar 2000 og á því 15 ára afmæli í dag.  Jón Otti er í GO (Golfklúbbnum Oddi). Fyrir tveimur árum, nánar tiltekið 13. janúar 2013 var Jón Otti ásamt Söndru Ósk Sigurðardóttur valinn efnilegasti ungi kylfingurinn Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 10. 2015 | 13:30

Bandaríska háskólagolfið: Guðrún Brá T-16 í Kaliforníu e. fyrri dag

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK og golflið Fresno State, The Bulldogs, taka þátt í The Gold Rush. Mótsstaður er Old Ranch CC á Long Beach í Kaliforníu og stendur mótið 9.-10. febrúar 2014. Þátttakendur eru 65 frá 11 háskólum. Guðrún Brá lék fyrstu tvo hringina á samtals 7 yfir pari, 151 höggi (75 76) og er T-16, þ.e. deilir 16. sætinu með 5 öðrum. Fylgjast má með gengi Guðrúnar Brá með því að SMELLA HÉR: en lokahringurinn verður leikinn í dag.

Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 10. 2015 | 12:00

Lexi Thompson 20 ára

Það eru margir stórkylfingar sem eiga stórafmæli í dag. Einn þeirra er bandaríski kylfingurinn Lexi Thompson. Hún sigraði fyrsta risamót sitt fyrir 20 ára afmælisdaginn, sem er í dag en það gerði hún 6. apríl á s.l. ári á Kraft Nabisco Open.Þar með eru sigrar hennar á LPGA orðnir 4. Árið 2011 nánar tiltekið 30. september 2011 fékk Lexi aldursundanþágu til þess að mega spila á LPGA. Lexi var þá aðeins 16 ára og sú yngsta þá sem unnið hafði á þeim tíma mót á LPGA þ.e. Navistar Classic, sem fram fór í Alabama. Þá var Lexi 16 ára, 7 mánaða og 8 daga gömul. Aldursmet Lexi var síðar slegið Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 10. 2015 | 11:30

Bandaríska háskólagolfið: Haraldur Franklín T-45 e. 1. dag í Texas

Haraldur Franklín Magnús, GR og golflið Louisiana Lafayette, The Ragin Cajuns, taka þátt í Oak Hills Invitaional mótinu. Mótið fer fram í Oak Hills CC, í San Antonio, Texas og er tveggja dagana 9.-10. febrúar 2015. Þátttakendur eru 84 frá 15 háskólum. Eftir 1. dag er Haraldur Franklín T-45 búinn að spila á samtals 150 höggum (78 72) – bætti sig um 6 högg milli hringja. Fylgjast má með Haraldi Franklín á skortöflu með þvi að SMELLA HÉR:  en lokahringurinn verður spilaður í dag.

Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 10. 2015 | 10:00

Greg Norman 60 ára

Stórkylfingurinn Greg Norman, frá Ástralíu sem oft er einnig nefndur „hvíti hákarlinn“ á 60 ára stórafmæli í dag.   Viðurnefni sitt fékk Greg vegna þess hversu ljós yfirlitum hann er með föla húð og ljóst hár en einnig vegna aggressívs golf- stíls síns og eins vegna þess að viðurnefnið vísar til þess rándýrs, sem finnst í höfunum við fæðingarstað Norman. Gregory John Norman AO fæddist 10. febrúar 1955 í Mount Isa, Queensland. Hann var í 331 viku nr. 1 á heimslistanum í golfinu á árunum milli 1980-1990.  Hann hefir sigrað í 85 alþjóðlegum mótum þ.á.m. í tveimur risamótum: Opna breska 1986 og 1993. Í dag býr Norman í Hobe Sound Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 10. 2015 | 07:00

Golfvellir í Kanada (E): Glendale G&C Club

Það eru u.þ.b. 2000 golfvellir í Kanada þar af eru um 230 í Alberta ríki og 37 í kringum 6. stærstu borg í Kanada, Edmonton í Alberta, nýs áfangastaðar Icelandair. Golf 1 verður hér með kynningu á nokkrum þessara 37 golfvalla  í kringum Edmonton. Við hefjum ferð okkar um golfvellina 37 nálægt Edmonton  í Glendale Golf & Country Club. Völlurinn er aðeins í 2 mílna (u.þ.b. 3,2 km fjarlægð) frá miðbæ Edmonton. Það var á 6. áratugnum sem hópur Gyðinga, sem allir voru bissnessmenn, komu saman og stofnuðu Glendale klúbbinn. Árið 1959 var klúbburinn skráður og árið 1960 var hægt að spila á fyrstu 9 holum klúbbsins á 170 ekru Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 9. 2015 | 21:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ingibergur Einarsson – 9. febrúar 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Ingibergur Einarsson, en hann er fæddur 9. febrúar 1955 og á því 60 ára stórafmæli í dag. Ingibergur er í Golfklúbbi Vestmannaeyja (GV). Komast má á facebooksíðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með merkisafmælið Ingibergur Einarsson (60 ára – Innilega til hamingju með stórafmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Virginia Van Wie, f. 9. febrúar 1909 – d. 18. febrúar 1997, Sandy Lyle, 9. febrúar 1958 (57 ára) og Mark Tullo, 9. febrúar 1978 (37 ára); Anna Rossi, 9. febrúar 1986 (29 ára); Gary Stal, 9. febrúar 1992 (23 ára) Golf 1 óskar öllum kylfingum sem eiga afmæli Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 9. 2015 | 17:00

Golfvellir í Bandaríkjunum: Trump National Golf Club Washington DC

Icelandair býður upp á ódýr flugfargjöld til Bandaríkjanna og meðal áfangastaða er Washington DC; litlar 30.000 kr. kostar farið. Tilvalið að skreppa til DC í golf!!!  Það er dýrara að spila 1 golfhring!!! Úr fullt af góðum golfklúbbum er að velja í nágrenni Washington DC og verður hér kynntur einn sem er í dýrari kantinum: Trump National Golf Club Washington DC.  Að spila golfhring þar kostar $280 þ.e. u.þ.b. 37.000 íslenskar krónur en verðið lækkar eftir því sem líður á daginn.  Og að spila Trump golfvöll er upplifun Úr tveimur 18-holu golfvöllum er að velja Championship golfvöllinn, sem hannaðaur var af Tom Fazio og River golfvöllinn, hönnuðum að Arthur Hill. Championship Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 9. 2015 | 13:15

LPGA: Sei Young Kim sigraði í Pure Silk Bahamas Classic

Það var Sei Young Kim sem stóð uppi sem sigurvegari á LPGA mótinu Pure Silk Bahamas Classic nú í gær, 8. febrúar 2015. Mótið fór fram á Ocean Club golfvellinum á Paradise Island í Bahamas. Kim var jöfn löndu sinni Sun Young Yoo og Ariyu Jutunugarn frá Thaílandi eftir hefðbundnar 72 holur en allar voru þær stöllur á 14 undir pari, 278 höggum. Það varð því að koma til bráðabana og þar sigraði Sei Young Kim strax á 1. holu.  „Þetta er draumur (sem rætist),“ sagði Kim eftir sigurinn. „Ég er virkilega hamingjusöm.“ Ein í 4. sæti var bandaríski kylfingurinn Brittany Lincicome aðeins 1 höggi á eftir forystukonunum og 5. sætinu Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 9. 2015 | 11:23

PGA: Hápunktar 4. dags á Farmers Insurance Open – Myndskeið

Í gær lauk Farmers Insurance Open mótinu, móti vikunnar á PGA mótaröðinni bandarísku. Keppt var sem fyrr á Torrey Pines,  í La Jolla, Kaliforníu. Til þess að sjá hápunktana á lokahring Farmers Insurance Open SMELLIÐ HÉR: