Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 14. 2016 | 21:00

Opna breska 2016: Mickelson á 63 og leiðir e. 1. dag á Royal Troon – Kaymer og Reed T-2

Phil Mickelson átti stórglæsilegan opnunarhring á Opna breska í dag.

Hann lék á 63 glæsihöggum – fékk 8 fugla og skilaði skollalausu skorkorti!!! Phil er i 1. sæti eftir 1. dag.

Í 2. sæti er enn annar kylfingurinn sem ekki var getið þegar líklegustu 10 sigurvegarar Opna voru taldir en það er þýski kylfingurinn Martin Kaymer.  Hann deilir 2. sætinu með Patrick Reed frá Bandaríkjunum en báðir léku á 5 undir pari, 66 höggum á 1. degi Opna.

Alveg tími á að Kaymer fari aftur að láta ljós sitt skína og gaman að sjá hann aftur með þeirra efstu!!!

Til þess að sjá stöðuna á Opna breska eftir 1. dag SMELLIÐ HÉR: