Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 20. 2022 | 08:00

Opna bandaríska 2022: Matt Fitzpatrick sigraði!

Það var Matt Fitzpatrick(oft bara kallaður Fitz), sem stóð uppi sem sigurvegari á Opna bandaríska 2022.

Sigurskor Fitz var 6 undir pari, 274 högg (68 70 68 68).

Fitz er fæddur 1. september 1994 og því 27 ára. Sigurinn sagði Fitz að væri „annars heims“ eða á ensku: „Out of this world!“ Þetta er 1. risamótatitill Fitz og að sigurlaunum hlaut hann 3,150 milljónir bandaríkjadala.

Í 2. sæti aðeins 1 höggi á eftir Fitz voru þeir Will Zalatoris og Scottie Scheffler.

Hideki Matsuyama varð síðan einn í 4. sæti á 3 undir pari og fimmta sætinu, á samtals 2 undir pari deildu þeir Rory McIlroy og Collin Morikawa.

Mótið fór fram á Country Club golfvellinum í Brookline, Massachusetts, dagana 16.-19. júní 2022.

Sjá má lokastöðuna á Opna bandaríska með því að SMELLA HÉR: