Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 15. 2017 | 10:00

Opna bandaríska 2017: Ólíklegt að áhugamaður sigri

Jack Nicklaus var nógu góður til að sigra á Opna bandaríska sem áhugamaður og honum tókst það næstum því.

Hann var t.a.m. í forystu sem áhugamaður á Opna bandaríska sem fram fór á Cherry Hills 1960 þegar eftir var að spila 6 holur, en hann missti af of mörgum stutum púttum þannig að Arnold Palmer krækti sér í titilinn.

Þetta skýrir stirðnaða brosið á Nicklaus aðspurður hvort hann telji að Marty Fleckman gæti hafa sigrað á Opna bandaríska fyrir 50 árum, en hann er næstsíðasti áhugamaðurinn, sem átti raunverulegan möguleika á að sigra á Opna bandaríska.

Fleckman var 23 ára áugamaður, NCAA meistari frá Houston, nýbúinn að sigra á Texas State Amateur. Hann var með 1 höggs forystu á Nicklaus, Palmer og Billy Casper á lokahring Opna bandaríska 1967 á Baltusrol.

Orðum það á þennan veg,“ sagði Nicklaus. „Hann var í forystu eftir 54 holur. Hann átti góðan sjéns á að sigra á Opna.“

En honum tókst það ekki.

Áhugamönnum virðist bara ekki takast að sigra á Opna bandaríska lengur, sem eru slæmar fréttir fyrir þá 14 áhugamenn sem keppa á Erin Hill nú í vikunni.

Þeir 14 áhugamenn, sem keppa á Opna bandaríska 2017 eru: Bandaríkjamennirnir Stewart Hagestad; Scott Harvey; Chris Crawford; Walker Lee; Sahith Theegala; Brad Dalke; Scottie Scheffler; Maverick McNealy; John Oda;  Cameron Champ; Mason Andersen og Alex Smalley   Englendingurinn Scott Gregory og Joaquin Niemann frá Chile.

Fá nöfn áhugamannanna hringja nokkrum bjöllum og næstum allir algerlega óþekktir, væntanlega með vonir um að slá í gegn á risamótinu.

Síðasta áhugamanninum sem tókst að sigra á Opna bandaríska var Johnny Goodman…. og það var árið 1933 …. og það er fátt sem bendir til að það muni breytast á næstunni.

Fleckman og Jim Simons, árið 1971, voru síðustu áhugamenn til að vera í forystu eftir 54 holur.

Flestir eru ekki lengi áhugamenn,“ sagði Nicklaus um áhugamenn dagsins í dag. „Ef ég hefði haldið áfram að vera áhugamaður tel ég að ég myndi hafa sigrað á Opna bandaríska?“ Jamm. Við erum með áhugamenn sem eru góðir kylfingar, en þeir gerast  yfirleitt atvinnumenn áður en þeir verða virkilega góðir.