DORAL, FL – MARCH 04: LPGA player Jessica Korda poses at the Trump National Doral ahead of the World Golf Championships-Cadillac Championship on March 4, 2014 in Doral, Florida. (Photo by Scott Halleran/Getty Images)
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 7. 2021 | 01:19

Ólympíuleikar 2020: Hörkuspennandi keppni – Ko og Ashok búnar að jafna við Korda á 7. braut

Nelly Korda frá Bandaríkjunum er búin að vera í forystu alla 3 fyrstu keppnisdaga í kvennagolfinu á Ólympíuleikunum í Tokyo.

Fyrir lokahringinn átti hún 3 högg á Aditi Ashok frá Indlandi og 4 högg á Lydiu Ko frá Nýja-Sjálandi.

Nú í nőtt fer fram æsispennandi lokahringur og eru þær báðar Ko og Ashok búnar að jafna við Nelly Korda á 7. braut.

Allar nú á 15. undir pari á 8. braut.

Það að Ashok og Ko hefir tekist að jafna skrifast á tvöfaldan skolla sem Korda fékk á par-3 7. braut Olympíugolfvallarins auk þess sem þær Ashok og Ko hafa spilað frábært golf. Ashok er búin að fá 3 fugla á fyrstu 8 og Ko heila 5 fugla!!!

Spennan er að verða óbærileg – Tekst Nelly að halda haus? Hrein unun að horfa á og fyrir þá sem ekki getað horft á í sjónvarpi má fylgjast með á skortöflu með því að SMELLA HÉR: 

Uppfærsla:

Eftir 9 holur er Nelly komin yfir aftur fékk fugl á par-4 9. brautina, meðan Ashok fékk skolla og Ko var á parinu.

Ótrúlega spennandi seinni 9 eftir!