Ólafur Björn Loftsson, NK. Foto gsimyndir.net
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 3. 2013 | 19:00

Ólafur Björn lék 3. hring á 72

Ólafur Björn Loftsson, NK, tekur um þessar mundir þátt í Columbia Open mótinu í Suður-Karólínu, en mótið er hluti eGolf-mótaraðarinnar.  Spilað er í Columbia CC – Ridgewood/Tall Pines í Suður-Karólínu og má sjá heimasíðu klúbbsins (m.a. myndir af vellinum) með því að SMELLA HÉR: 

Ólafur Björn er samtals búinn að spila á 1 undir pari, 212 höggum (70 70 72).  Á hringnum í dag fékk Ólafur Björn 2 fugla, 13 pör og 3 skolla.  Hann deilir nú 31. sæti í mótinu með 5 öðrum kylfingum.

Nokkuð sér á báti er Tanner Ervin, sem er í efsta sæti í mótinu en hann er búinn að spila á samtals 16 undir pari, 197 höggum (67 63 67).

Til þess að sjá stöðuna á Columbia Open eftir 3. hring SMELLIÐ HÉR: