Ólafur Björn Loftsson on one of his favorite golfcourses in Iceland – the Vestmanna Islands golfcourse. Photo: gsimyndir.net Ólafur Björn í 35. sæti e. 2. dag úrtökumótsins í Kanada
Ólafur Björn Loftsson, NK, tekur nú þátt í úrtökumóti fyrir kanadíski PGA mótaröðina.
Úrtökumótin eru nokkur og fer það sem Ólafur Björn tekur þátti fram á Austurströnd Bandaríkjanna (USA East), en mótsstaðurinn er Jack Nicklaus Signature golfvöllurinn í Reunion Resort – Kissimmee, Orlando, Flórída.
Úrtökumótið átti að fram dagana 14.-18. apríl og ljúka í dag,en veðrið (hvassviðri) setti strik í reikninginn.
Búið er að spila tvo hringi en þeim þriðja var frestað vegna veðurs og einum degi bætt við mótið.
Ólafur Björn skrifaði eftirfarandi um gengi sitt í mótinu:
„Veðrið áfram í aðalhlutverki hér í Flórída. Spilaði 5 holur í morgun og lék þær á einum undir pari. Ég byrjaði með látum strax á fyrstu holunni og vippaði beint ofan í holu af rúmlega 30 metra færi. Ég kom mér í góð færi á næstu holum og var nálægt því að fá fleiri fugla.
Ég er samtals +8 eftir fyrstu tvo hringina og er jafn í 35. sæti eins og staðan er núna. Skorið er áfram mjög hátt og það er til að mynda enginn kylfingur undir pari í mótinu. Spáin er áfram slæm og spurning hvort við náum að klára alla fjóra hringina, þrátt fyrir að það sé búið að bæta við einum degi.
Ég á rástíma kl. 10:43 í fyrramálið. Ég mun halda mig við mitt leikplan og hafa gaman að því að takast á við krefjandi áskoranir.“
Hér má sjá umfjöllun um úrtökumótið sem Ólafur Björn tekur þátt í SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
