Ólafía Þórunn komst inn á Evían risamótið
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir verður á meðal keppenda á fimmta og síðasta risamóti ársins sem fram fer í Frakklandi 14.-17. september. Það verður þriðja risamótið sem GR-ingurinn tekur þátt í á þessu tímabili. Frá þessu var greint á visir.is. og sjá má greinina á Vísi með því að SMELLA HÉR:
Ólafía Þórunn er fyrsti íslenski kylfingurinn sem leikið hefur á risamóti en það gerði hún á KPMG PGA meistaramótinu í júní s.l. Hún komst inn á Opna breska meistaramótið í ágúst og í millitíðinni hafði Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni keppt á Opna bandaríska meistaramótinu. Íslendingar hafa því verið á fjórum af alls fimm risamótum ársins á atvinnumótaröð kvenna.
Góður árangur hennar á síðasta LPGA móti í Portland tryggði Ólafíu Þórunni keppnisréttinn á Evian meistaramótinu. Ólafía var um tíma í 20. sæti á biðlista fyrir mótið og komst síðan upp í fimmta sæti á biðlistanum. Hún náði að komast inn á keppendalistann með því að enda í 39. sæti á síðasta LPGA móti í Portland. Ólafía keppir á LPGA móti í Indianpolis sem hefst á fimmtudaginn áður en hún fer yfir til Frakklands á Evian meistaramótið.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
