LPGA: Ólafía Þórunn í sannkölluðum stjörnuráshóp – hefur leik e. 2 tíma
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, verður í sannkölluðum „stjörnuráshóp” fyrstu tvo keppnisdagana á Pure Silk-Bahamas LPGA Classic mótinu. GR-ingurinn verður með stórvinkonu sinni, Cheyenne Woods og Natalie Gulbis, í ráshóp.
Þær hefja leik kl. 8.22 að staðartíma á 1. teig á fimmtudaginn eða kl. 13.22 að íslenskum tíma.
Cheyenne Woods og Ólafía voru liðsfélagar í bandaríska háskólaliðinu Wake Forest. Woods er eins og nafnið gefur til kynna frænka hins eina sanna Tiger Woods. Earl Dennison Woods Jr. er faðir Cheyenne en hann og Tiger Woods áttu sama föður, Earl Woods.
Natalie Gulbis er bandarísk eins og Cheyenne Woods. Gulbis er 34 ára gömul og hefur sigrað á einu móti á LPGA mótaröðinni árið 2007 á Evian meistaramótinu sem var á þeim tíma ekki eitt af risamótunum fimm á LPGA. Gulbis hefur þrívegis verið í Solheimliðinu hjá Bandríkjunum, 2005, 2007 og 2009.
Heimild: GSÍ
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
