Ólafía Þórunn í 182. sæti Rolex-heimslistans – Ólympíusæti í augsýn
Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir heldur áfram að færa sig ofar á heimslistanum í golfi, sem er uppfærður vikulega.
Sjá má Rolex-heimslista kvenkylfinga með því að SMELLA HÉR:
GR-ingurinn er í sæti nr. 182. á listanum núna og fer úr sæti nr. 197 á listanum eða upp um 15 sæti. Á einu ári hefur Ólafía farið úr sæti nr. 704 á heimslistanum og upp í sæti nr. 182 eða 522 sæti. Ólafía heldur því áfram að bæta besta árangur sem íslenskur kylfingur hefur náð á heimslistanum í golfi.
Staðan á heimslistanum er gríðarlega mikilvæg fyrir stöðu keppenda fyrir Ólympíuleikana 2020 í Tokýó í Japan.
Alls komast 60 kylfingar inn á Ólympíuleikana hjá báðum kynjum eða 120 keppendur samtals. Viðamikið kvótakerfi er í gangi varðandi þátttökurétt keppenda og er það gert til þess að sem flestar þjóðir eigi möguleika á að koma keppendum inn á ÓL.
Fimmtán efstu á heimslista karla og kvenna komast sjálfkrafa inn á ÓL 2020 en aðeins fjórir geta verið frá sama landi á þeim lista. Kvóti er á fjölda keppenda frá hverri þjóð og geta aðeins tveir að hámarki verið frá sama landi í sætum 16-59 á styrkleikalistanum.
Sem dæmi má nefna að á ÓL í Ríó de Janiero í Brasilíu árið 2016 komst Cathryn Bristow frá Nýja-Sjálandi inn á ÓL. Hún var í sæti nr. 446 þegar heimslistinn var uppfærður þann 11. júlí 2016 en það var síðasti möguleiki keppenda til þess að bæta stöðu sína á heimslistanum.
Á þeim tíma voru Ólafía Þórunn og Valdís Þóra Jónsdóttir í sætum nr. 714 og 731 á heimslistanum. Ólafía var því 268 sætum frá því að komast inn og Valdís Þóra var 285sætum frá því að komast inn á ÓL.
Miðað við stöðuna hjá Ólafíu Þórunni núna þá væri hún í hópi þeirra sem kæmust inn á ÓL 2020.
Texti: GSÍ
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
