Ólafía Þórunn hefur keppni á morgun i Oregon
Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir, LPGA-kylfingur úr GR, hefur leik á morgun, fimmtudaginn 30. ágúst 2018 á LPGA móti sem fram fer í Portland, Oregon, í Bandaríkjunum.
Ólafía Þórunn fer út kl. 12:26 að staðartíma (sem er kl. 19:26 hér heima á Íslandi). Hún er í ráshóp með danska kylfingnum Nönnu Koerstz Madsen og Mi Jung Hur frá S-Kóreu.
Ólafía endaði í 64. sæti á CP mótinu sem lauk s.l. sunnudag í Kanada. Þar lék hún á +1 samtals.
Ólafía hefur leikið á 20 mótum á tímabilinu. Eins og staðan er núna þá er Ólafía í sæti nr. 138 á peningalista LPGA mótaraðarinnar. Hún fór upp um eitt sæti frá því í síðustu viku.
Öll úrslit hjá Ólafíu má sjá með því að SMELLA HÉR:
Ólafía þarf að vera á meðal hundrað efstu í lok tímabilsins til að halda keppnisréttinum á næsta tímabili. Verði hún í sætum 101-125 í lok tímabilsins, fær hún takmarkaðan keppnisrétt á næsta tímabili.
Þá þarf hún samt sem áður að fara í gegnum úrtökumót fyrir mótaröðina í desember, verði hún í sætum 101-125.
Fylgjast má með skori Ólafíu Þórunnar í mótinu með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
