Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 9. 2014 | 15:45

Ólafía Þórunn best af íslensku keppendunum á EM kvennalandsliða 2. daginn í röð

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR lék best af íslensku keppendunum á EM kvennalandsliða í dag 2. keppnisdag en mótið fer fram í Ljubliana, Slóveniu. Fyrstu tvo keppnisdagana er keppt í höggleik þar sem fimm bestu skorin telja eftir hvern dag. Nánari upplýsingar um mótið og skor keppenda má finna með því að  SMELLA HÉR: 

T26 – Ólafía Þórunn Kristinsdóttir Golfklúbbi Reykjavíkur, samtals á 2 yfir pari, 144 höggum (70 74).

T37 – Signý Arnórsdóttir Golfklúbbnum Keili, samtals á 3 yfir pari, 145 höggum (73 72).

T37 – Ragnhildur Kristinsdóttir Golfklúbbi Reykjavíkur, samtals á 3 yfir pari, 145 höggum (72 73).

T61 – Sunna Víðisdóttir Golfklúbbi Reykjavíkur, samtals á 7 yfir pari, 149 höggum (76 73)

T61 – Guðrún Brá Björgvinsdóttir Golfklúbbnum Keili,  samtals á 7 yfir pari, 149 höggum (75 74).

T110 – Berglind Björnsdóttir Golfklúbbi Reykjavíkur, samtals á  17 yfir pari, 159 höggum (78 81).

 

Þjálfari: Brynjar Geirsson

Liðsstjóri: Sædís Magnússon