Ólafía á blaðamannafundi hjá KPMG
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR er þessa stundina á blaðamannafundi í höfuðstöðvum KPMG í Reykjavík, en KPMG er fyrsti stóri styrktaraðili hennar, fyrir utan Forskot.
Á fundinum fór Ólafía Þórunn yfir styrktarsamninginn og reynslu sína af fyrsta LPGA mótinu.
Kom m.a. fram að þarna þegar á fyrsta mótinu hefði Ólafía hitt 83% brauta sem er ótrúlega gott miðað við að hún er að stíga sín fyrstu skref á bestu kvenmótaröð heims, LPGA.
Aðspurð af reynslu sinni af fyrsta mótinu sagði Ólafíu hana hafa verið jákvæða; hún hefði spilað á móti Cheyenne Woods, frænku Tiger Woods, sem var skólafélagi hennar í Wake Forest háskólanum og þær hefðu bara haft það huggulegt, spjallað um gamla daga í skólanum og í raun gleymt því að þær væru að keppa í móti á LPGA.
Þriðji hringurinn hefði verið erfiðari og keppinautur hennar þar Moriya Jutunugarn einbeitt.
Aðspurð um áform sín kvaðst Ólafía stefna að því að bæta sig í hverju móti; hún ætlaði að einbeita sér að því að ná góðum árangri í fyrstu mótunum.
Ólafía mun næst keppa í Ástralíu en þangað sagðist Ólafía aldrei hafa komið og hún sagðist hlakka til – 26 tíma ferðalag framundan.
Síðasta spurning sem lögð var fyrir Ólafíu Þórunni á blaðamannafundinum var hversu stolt hún væri að vera fyrsta konan frá Íslandi á LPGA?
Ólafía sagðist vera mjög stolt, sérstaklega af löndum sínum sem hefðu komið og fylgst með henni. Hún sagði að við Íslendingar værum mjög sérstök – hún væri mjög stolt af því að vera Íslendingur í Bandaríkjunum.
Sjá má nokkrar myndir af fundinum hér að neðan:

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR í höfuðstöðvum KPMG á Íslandi 8. febrúar 2017. Mynd: Golf 1

Fundargestir á blaðamannafundi KPMG með Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur, GR. Á myndinni má m.a. sjá forseta og framkvæmdastjóra GSÍ. Mynd: Golf 1


Fundargestir á blaðamannafundi KPMG með Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur. Mynd: Golf 1
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
