Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 9. 2012 | 15:00

Obama telur að Augusta National eigi að heimila konum aðild að klúbbnum – myndskeið

Obama telur að Augusta National eigi að heimila konum aðild að þessum „gamla stráka golfklúbb.“ (Já, já þetta er bein þýðing á Old Boys Club!!!) Barack Obama, Bandaríkjaforseti er þekktur fyrir ást sína á golfleiknum, en hann er vel slarkfær sjálfur með 17 í forgjöf.

Talsmaður Bandaríkjaforseta var inntur eftir afstöðu forsetans til þess hvort Obama finndist að konur ættu að geta gerst félagar í Augusta National. Svar Jay Carney (talsmanns Obama):„Já, persónuleg skoðun hans (Obama) er sú að veita eigi konum aðild (að Augusta National).“  Sjá má myndskeiðið með Jay Carney með því að smella HÉR: