NÝTT! Nýju stúlkurnar á LET 2012 (1. grein af 34): Carly Booth
Hér á Golf 1 hafa allir þeir sem hlutu kortin sín í gegnum Q-school á PGA, LPGA og á Evróputúrinn, keppnistímabilið 2012, verið kynntir og nú á bara eftir að kynna þær stúlkur sem hlutu kortin sín á LET í ár.
Í janúar á þessu ári fór fram lokaúrtökumót Q-school LET á La Manga á Spáni. Meðal þeirra 72 sem komust af 1. stigi úrtökumótsins á lokaúrtökumótið var Tinna Jóhannsdóttir, GK. Alls voru 101 stúlka, sem spilaði á lokaúrtökumótinu og voru spilaðir 5 hringir og niðurskurður um helming þ.e. í 50 stúlkur eftir 4 hringi. Því miður var Tinna ekki ein af þeim sem komust í gegnum niðurskurð. Hún hlaut því spilarétt í flokki 11 a á LET, sem aðallega felst í keppnisrétti á LET Access Series.
Fyrstu 4 hringina voru Norður- og Suðurvöllur La Manga spilaðir til skiptis og lokahringurinn á Suðurvellinum. Þær 50 sem eftir voru kepptu um eitt af 30 efstu sætunum og um kortið sitt þ.e. fullan keppnisrétt á LET í flokki 8a, hinar 20 fengu minni spilarétt og eru í flokki 9b. Aðeins þær sem urðu í flokki 8a verða kynntar hér á Golf 1, þ.e. 30 efstu stúlkurnar + 4 aðrar stúlkur og verður ástæða þess getið hér að neðan.
Í ár fóru leikar nefnilega þannig að 6 stúlkur: hin skoska Carly Booth, spænsku stúlkurnar Laura Cabanillas og Mireia Prat, Sharmila Nicolet frá Indlandi, Hannah Burke frá Englandi og Miriam Nagl frá Þýskalandi voru jafnar í 29. sæti og því kom til hörku umspils milli þeirra, þar sem keppt var um þau 2 kort sem eftir voru (þ.e. 29. og 30. sætið í 8 a flokki LET). Þær Laura Cabanillas og Sharmila Nicolet unnu umspilið og hlutu því fullan keppnisrétt á LET 2012. Hinar 4 sem töpuðu í umspilinu verða líka kynntar á Golf 1 og því má eiga von á 34 kynningum á „Nýju stúlkunum á LET.“ Hafður verður sami háttur á og áður, fyrst byrjað að kynna stúlkurnar 6 sem urðu jafnar í 29. sæti – byrjað á þeim 4 töpuðu í umspilinu og síðan þær kynntar, sem urðu í 30. og 29. sæti o.s.frv og endað á ensku stúlkunni Jodi Ewart, sem sigraði í Q-school LET 2012.
Af þeim 4, sem töpuðu umspilinu verður á Carly Booth frá Skotlandi kynnt fyrst, en hún fékk skv. ofangreindu ekki fullan spilarétt á LET og var ein 4 af 6 sem tapaði í umspilinu. Hún hefir svo sannarlega bætt fyrir það og er komin í 1. sæti á stigalista LET og sannast þar hið fornkveðna að hinir síðustu verði fyrstir!
Carly byrjaði á því að sigra Dinard Ladies Open á LET Access Series í ár, móti sem Tinna „okkar“ Jóhannsdóttir tók líka þátt í. Síðan þá hefir Carly sigrað á Opna skoska og Opna svissneska á LET. Það merkilega er að Carly hefir í öllum tilvikum sigrað eftir umspil og hefir því svo sannarlega bætt fyrir tapið í umspilinu í Q-school, en Carly er að eigin sögn afar tapsár. Þetta allt og það bara á nýliðaári Carly, án þess að hún hafi í upphafi verið með fullan keppnisrétt á LET! Vegna góðs árangurs er Carly nú búin að tryggja sér keppnisrétt á LET það sem eftir er árs og 2013.
Sjá má kynningu Golf 1 á Carly Booth með því að SMELLA HÉR:
Sjá má úrslitin í Q-school LET 2012 á La Manga golfvellinum á Spáni með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
