Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 14. 2016 | 08:45

Nýr Ryder Cup golfvöllur opnar á Belfry

The Belfry Hotel & Resort hefir opnað míní-golfvöll sem byggir á sögu Ryder Cup og sögufrægum holum í þessu vinsæla móti milli golfliða heimsálfanna Evrópu og Bandaríkja N-Ameríku.

GB ferðir bjóða nú upp á ferðir á Belfry og er um að gera að prófa þennan skemmtilega nýja völl – alltaf gaman í mínígolfi líka og layoutið á þessum velli sérlega skemmtilegt.  Sjáið auglýsingu GB ferða á Golf 1 að ofan til hægri.

Á mínígolfvellinum eru 12 holur og 9 þeirra eru frægar úr Ryder bikars sögunni – svo eru hinar 3 hugsaðar sem bónúsholur til þess að upplifunin verði enn skemmtilegri.

Á vellinum er m.a. eftirlíking áhættu-verðlauna 10. holunnar á The Brabazon á Belfry.

Mínígolfvöllurinn er hannaður af arkítektum City Golf.

Meðal eftirlíkinga af goðsagnakenndum holum af evrópskum völlum sem finna má í Belfry er m.a. 17. holan á Valderrama, 18. holan á Wentworth, og 9. holan á Royal Lytham & St Annes. Meðal eftirlíkinga á frægum holum á bandarískum völlum eru m.a. 17. holan á Kiawah Island, 13. holan á Valhalla og nr. 5 á Pinehurst.

Þeir sem eru í ferðum GB fá að spila ótakmarkað golf en fyrir þá sem e.t.v. eru bara á eiginn vegum á Belfry mætti geta að það kosta 7 pund fyrir fullorðna að spila völlinn og 5 pund fyrir krakka – en það er einmitt tilvalið að fara með krakkana í mínígolf.

Völlurinn er opinn daglega frá 10-18 og það þarf ekki að bóka. Það er hægt að taka allan völlinn á leigu fyrir 250 pund.

Hér má sjá skorkortið á mínígolfvelli Belfry: 
1 Par 5 Valderrama, 17th (Ryder Cup 1997)
2 Par 5 Wentworth West Course, 18th (Ryder Cup 1953)
3 Par 3 Kiawah Island Ocean Course, 17th (Ryder Cup 1991)
4 Par 4 Valhalla, 13th (Ryder Cup 1991)
5 Par 3 Royal Lytham & St Annes, 9th (Ryder Cup 1961, 1977)
6 Par 4 Royal Birkdale, 16th (Ryder Cup 1965, 1969)
7 Par 2 Spiral Fun Hola
8 Par 2 U-Bend Fun Hoae
9 Par 5 Pinehurst No. 2 Course, 9th (Ryder Cup 1951)
10 Par 2 Up and Over Fun Hola
11 Par 4 The Belfry Brabazon Course, 10th (Ryder Cup 1985, 1989, 1993, 2002)
12 Par 4 PGA National Champion Course, 15th (Ryder Cup 1983)