Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 17. 2017 | 22:00

Nýju stúlkurnar á LPGA: Emily Pedersen (27/54)

Þann 30. nóvember – 4. desember 2016 fór fram 3. stigs mót LPGA, lokaúrtökumót um hverjar 20 myndu hljóta fullan keppnisrétt á LPGA keppnistímabilið 2016-2017 og hvaða keppendur hlytu takmarkaðan keppnisrétt þ.e. þær sem voru í sætum 21-45 og þær sem jafnar voru í 45. sætinu eða T-45.

155 þátttakendur voru að þessu sinni.

Nú hafa 26 stúlkur verið kynntar sem rétt sluppu inn á LPGA og eru með takmarkaðan keppnisrétt 2017.

Nú næst verða þær tvær kynntar sem deildu 27. sætinu en það eru Stephanie Meadow og Emily Pedersen og byrjað á Emily.

Emily Kristine Pedersen fæddist 7. mars 1996 í Kaupmannahöfn og er því 20 ára.

Hún býr í Smørum í Danmörku.

Pedersen gerðist atvinnumaður 1. febrúar 2015 og er meðal þeirra yngstu sem komust í gegnum Q-schooll LPGA.

Emily Kristine Pedersen byrjaði í golfi aðeins 10 ára og er því aðeins búin að vera í golfi í tæp 10 ár. Hún byrjaði eftir að henni var gefið klúbbsaðild að Smørum golfklúbbnum í afmælisgjöf. Pedersen hefir ásamt vinkonu sinni Nönnu Koerstz Madsen sverið í i Smørum Golfklub síðan og hafa þær vinkonurnar bæði keppt og hvatt hvor aðra áfram.

Pedersen tók þátt í sínu fyrsta stelpumóti 12 ára og sama ár var hún komin í danska unglingalandsliðið í golfi.

Fyrsta stóra árangri sínum náði Pedersen 14 ára, í júní 2010 þegar hún varð Danmerkurmeistari í holukeppni og vann þá m.a. Daisy Nielsen.

Pedersen hefir frá árinu 2011 (þ.e. frá 15 ára aldri) tekið þátt í nokkrum mótum LET Access og Nordea Tour og besti árangur hennar í þeim mótum var 2. sætið á Kristianstad Åhus Ladies Open 17. maí 2014 en mótið var hluti af LET Access mótaröðinni.

Í árslok 2014 tók Emily þátt í Lalla Aicha Tour School og náði þeim glæsilega árangri að ná 4. sætinu og var þar með einn langyngsti keppandi á LET keppnistímabilið 2015.

Nú 2016 er þessi unga danska stúlka líka búin að bæta við takmörkuðum spilarétt á bestu mótaröð heims, LPGA… og verður gaman að fylgjast með henni í framtíðinni.