Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 13. 2017 | 18:00

Nýju stúlkurnar á LPGA: Daniela Darquea (23/54)

Þann 30. nóvember – 4. desember 2016 fór fram 3. stigs mót LPGA, lokaúrtökumót um hverjar 20 myndu hljóta fullan keppnisrétt á LPGA keppnistímabilið 2016-2017 og hvaða keppendur hlytu takmarkaðan keppnisrétt þ.e. þær sem voru í sætum 21-45 og þær sem jafnar voru í 45. sætinu eða T-45.

155 þátttakendur voru að þessu sinni.

Nú hafa 20 stúlkur verið kynntar sem rétt sluppu inn á LPGA og eru með takmarkaðan keppnisrétt 2017.

Í gær var byrjað að kynna þær sem voru jafnar í 29. sæti en það eru: Jenny Coleman; Emily Tubert; Brittany Benvenuto; Daniela Darquea; Mina Harigae og Lauren Kim.

Þær léku allar á samtals sléttu pari, 360 höggum.

Mina Harigae og Lauren Kim hafa þegar verið kynntar, en í kvöld verður Daniela Darquea kynnt.

Daniela Darquea fæddist í Ekvador og hefir spilað golf frá því að hún var 4 ára.

Hún byrjaði að spila golf í  Los Arrayanes Club í Quito, Ekvador.

Daníela átti góðan áhugamannaferil; var nr. 1 af kvenáhugamönnum í Ekvador og nr. 9 í S-Ameríku.

Hún lék með golfliði University of Miami 2013-2016 og má sjá afrek hennar þar með því að SMELLA HÉR: 

Þetta er í fyrsta skipti sem Daniela tekur þátt í lokaúrtökumóti LPGA og er þegar komin með takmarkaðan spilarétt á sterkustu kvenmótaröð heims, LPGA.

Sjá má myndir af Daníelu á Instragram með því að SMELLA HÉR: