Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 21. 2017 | 18:00

Nýju stúlkurnar á LPGA: Bronte Law (31/54)

Þann 30. nóvember – 4. desember 2016 fór fram 3. stigs mót LPGA, lokaúrtökumót um hverjar 20 myndu hljóta fullan keppnisrétt á LPGA keppnistímabilið 2016-2017 og hvaða keppendur hlytu takmarkaðan keppnisrétt þ.e. þær sem voru í sætum 21-45 og þær sem jafnar voru í 45. sætinu eða T-45.

155 þátttakendur voru að þessu sinni.

Nú hafa 28 stúlkur verið kynntar sem rétt sluppu inn á LPGA og eru með takmarkaðan keppnisrétt 2017.

Nú næst verða þær sem deildu 24. sætinu, en það voru 3 stúlkur sem allar léku á samtals 2 undir pari, 358 höggum: áhugamaðurinn Bronte Law (75 68 73 70 72); Aditi Ashok frá Indlandi (73 70 71 71 73) og hin danska Nicole Broch Larsen (69 78 66 69 76).

Bara á eftir að kynna Bronte Law og verður hún kynnt í kvöld.

Bronte Law fæddist í Stockport, Englandi 12. mars 1995 og er því 21 árs.

Law spilaði fyrir lið Breta&Íra 2012 (í sigurliði) 2014 (í sigurliði) og 2016 í Curtis Cup. Árið 2016 varð hún 2. kylfingurinn og sá 1. frá Bretlandi til þess að vinna alla leiki sína í þeirri keppni, var með fullt hús eða  5–0.

Önnur mót sem Law hefir tekið þátt í, sem áhugamaður:
Junior Ryder Cup (fulltrúi Evrópu): 2012
Vagliano Trophy (í liði Breta&Íra): 2013, 2015
Junior Solheim Cup (lið Evrópu): 2013
Espirito Santo Trophy (fyrir England): 2014

Í fyrra, 2016  sigraði Law á  European Ladies Amateur Championship og komst þannig í 2. sæti á heimslista áhugamanna (ens.: World Amateur Golf Ranking).

Þrátt fyrir ungan aldur hefir Law þegar tekið þátt í 3 risamótum kvennagolfsins: Ana Inspiration, Evian Championship og Women´s British Open en í því síðastnefnda, sem hún tók þátt í 2012 (16 ára) varð hún T-33, sem er besti árangur hennar, en í hinum tveimur risamótunum komst hún ekki gegnum niðurskurð.

Law gerðist atvinnumaður í golfi 2016.

Hún er komin með fullan keppnisrétt í 2. deild bandaríska kvennagolfsins, Symetra Tour og með takmarkaðan spilarétt á LPGA Tour keppnistímabilið 2017.