Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 14. 2017 | 18:00

Nýju stúlkurnar á LPGA: Brittany Benvenuto (24/54)

Þann 30. nóvember – 4. desember 2016 fór fram 3. stigs mót LPGA, lokaúrtökumót um hverjar 20 myndu hljóta fullan keppnisrétt á LPGA keppnistímabilið 2016-2017 og hvaða keppendur hlytu takmarkaðan keppnisrétt þ.e. þær sem voru í sætum 21-45 og þær sem jafnar voru í 45. sætinu eða T-45.

155 þátttakendur voru að þessu sinni.

Nú hafa 20 stúlkur verið kynntar sem rétt sluppu inn á LPGA og eru með takmarkaðan keppnisrétt 2017.

Í gær var byrjað að kynna þær sem voru jafnar í 29. sæti en það eru: Jenny Coleman; Emily Tubert; Brittany Benvenuto; Daniela Darquea; Mina Harigae og Lauren Kim.

Þær léku allar á samtals sléttu pari, 360 höggum.

Mina Harigae, Lauren Kim og Daniela Darquea hafa þegar verið kynntar, en í kvöld verður Brittany Benvenuto kynnt.

Brittany Michelle Benvenuto fæddist 9. júní 1988 í Langhorne, Pennsylvaníu í Bandaríkjunum og er því 28 ára.

Hún byrjaði að spila golf 12 ára.

Benvenuto hefir verið á Symetra Tour síðan 2012 þ.e. 2. deildinni í bandarísku kvennagolfi

Henni finnst gaman að taka þátt í eða horfa á aðrar íþróttir og verja tíma með fjölskyldu og vinum.

Nú er Brittany Benvenuto komin með takmarkaðan spilarétt á LPGA eftir að hafa orðið T-29 í lokúrtökumóti LPGA

Helstu afrek:

Sigraði 2005 í Pennsylvania State High School District 1 Golf Championship.
Valin í IJGT All-American.
Félagi og tvisvar fyrirliði  boy’s high school golf team (2005, 2006).
Varð í 6. sæti árið 2008 á Women’s Eastern Amateur Championship.
Sigurvegari á 2008 Pennsylvania State Women’s Amateur Championship.
Spilaði í bandaríska háskólagolfinu með golfliði University of Arizona – Sjá má afrek hennar þar með því að SMELLA HÉR: