Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 28. 2019 | 10:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2019: Suzuka Yamaguchi (23/58)

Hér verða líkt og á undanförnum árum kynntar þær stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA fyrir 2019 keppnistímabilið. Þetta eru þær sem urðu í 45. sæti eða voru jafnar í 45. sæti á lokaúrtökumóti LPGA og efstu 10 á peningalista 2. deildarinnar þ.e. Symetra Tour.

Í ár voru 48 stúlkur sem komust á LPGA gegnum lokaúrtökumótið og síðan einnig þær 10, sem efstar urðu á peningalista Symetra Tour eða alls 58 stúlkur.

Hér hafa 10 efstu á peningalista Symetra Tour verið kynntar sem og þær sem jafnar voru í 45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, en það eru þær Karen Chung, frá Bandaríkjunum; P.K. Kongkraphan frá Thaílandi; Louise Strahle frá Svíþjóð og Robyn Choi frá Ástralíu.

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir tók þátt í lokaúrtökumóti LPGA en varð ekki meðal efstu 45 og náði því ekki að endurnýja kortið sitt og fastan keppnisrétt á LPGA næsta keppnistímabil.

Það voru 6 stúlkur, sem deildu 39. sætinu og hafa þær einnig verið kynntar en það eru: Lee Lopez, Sandra Changkija, Lauren Coughlin og Stephanie Kono frá Bandaríkjunum; Pajaree Anannarukarn frá Thaílandi og Guilia Molinaro frá Ítalíu. Þessar 6 léku allar á samtals 9 yfir pari á lokaúrtökumótinu, hver.

Þær sem deildu 36. sætinu eru: Suzuka Yamaguchi frá Japan; Louise Ridderström frá Svíþjóð og Sophiu Popov frá Þýskalandi. Af þeim 3 á bara eftir að kynna Suzuku Yamaguchi og verður það gert í dag.

Suzuka Yamaguchi fæddist 2. ágúst 2000 í Kanagawa, Japan og er því aðeins 18 ára og yngst þeirra sem komst á LPGA keppnistímabilið 2019.

Hún er ekki há í loftinu, aðeins 1,6 m.

Yamaguchi gerðist atvinnumaður í golfi 2019, eftir að hafa komist á LPGA í úrtökumótinu.

Hún sigraði á tveimur mótum í fyrra 2018 þ.e.  Australian Women’s Amateur og  Avondale Amateur Medal og er litið á Yamaguchi sem mikið efni í golfi.

Sem stendur er Yamaguchi nr. 520 á Rolex heimslista kvenna, en nokkuð öruggt er að hún á eftir að fara mun hærra!