Nýju stúlkurnar á LPGA 2019: Pavarisa Yoktuan (8/58)
Hér verða líkt og á undanförnum árum kynntar þær stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA fyrir 2019 keppnistímabilið.
Þetta eru þær sem urðu í 45. sæti eða voru jafnar í 45. sæti á lokaúrtökumóti LPGA og efstu 10 á peningalista 2. deildarinnar þ.e. Symetra Tour.
Byrjað verður að kynna 10 efstu á peningalista Symetra Tour og síðan 45 efstu og þær sem jafnar voru í 45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA. Í ár voru 48 stúlkur sem komust á LPGA gegnum lokaúrtökumótið og þær ásamt þeim 10 sem efstar urðu á peningalista Symetra Tour eða alls 58 stúlkur verða því kynntar hér á næstu mánuðum.
Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir tók þátt í lokaúrtökumóti LPGA en varð ekki meðal efstu 45 og náði því ekki að endurnýja kortið sitt og fastan keppnisrétt á LPGA næsta keppnistímabil.
Sú sem kynnt verður hér er stúlka sem varð í 4. sæti á peningalista Symetra Tour og er þannig komin með fullan spilarétt á LPGA. Þetta er Pavarisa Yoktuan, en hún vann sér inn $80,313 í verðlaunafé í mótum Symetra Tour. Áður hafa, Elizabeth Szokol (4. sæti), Linnea Ström (5. sæti), Stephanie Meadow (6. sæti), Kendall Dye (7. sæti), Charlotte Thomas (8. sæti), Isi Gabsa (9. sæti) og Dana Finkelstein (10. sæti) verið kynntar.
Pavarisa Yoktuan fæddist 3. maí 1994 í Thaílandi og er því 24 ára.
Yoktuan hafði 3 sinnum tekið þátt í lokaúrtökumóti LPGA en henni hafði fram til þessa ekki tekist nema að vinna sér inn nema takmarkaðan þátttökurétt. Það er breytt nú og nú hefir hin thaílenska Yoktuan FULLAN keppnisrétt á sterkustu mótaröð heims.
Pavarisa Yoktuan hefir 3 sinnum sigrað á tælenska LPGA og hún gerðist atvinnumaður í golfi 2012.
Hún varð í 2. sæti á tælenska peningalistanum árið 2015.
Hún hefir líka unnið á kínverska LPGA þ.e. CLPGA árið 2014.
Yoktuan segir að upphaldsgolfmóment hennar hafi verið að fylgjast með löndu sinni Pornanong Phatlum sigra á Dubai Ladies Masters.
Yoktuan er afar hjátrúarfull í golfinu. Það birtist m.a. í því að fyrir keppnishringi með oddatölu þá æfir hún aðeins með kylfum með oddatölu og þegar keppnisdagarnir eru sléttir þ.e. 2. hringur og lokahringurinn þá æfir hún sig með kylfum með sléttum tölum.
Yoktuan segir að uppáhaldskylfingur sinn sé norska frænka okkar Suzann Pettersen.
Pavarisa varð í þetta skipti 13 sinnum meðal efstu 20 á mótum Symetra Tour 2018 og það tryggði henni 3. sætið á peningalista mótaraðarinnar og kortið og þar með fullan spilarétt á LPGA 2019.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
