Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 18. 2019 | 10:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2019: Jing Yan (36/58)

Hér verða líkt og á undanförnum árum kynntar þær stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA fyrir 2019 keppnistímabilið. Þetta eru þær sem urðu í 45. sæti eða voru jafnar í 45. sæti á lokaúrtökumóti LPGA og efstu 10 á peningalista 2. deildarinnar þ.e. Symetra Tour.

Í ár voru 48 stúlkur sem komust á LPGA gegnum lokaúrtökumótið og síðan einnig þær 10, sem efstar urðu á peningalista Symetra Tour eða alls 58 stúlkur.

Hér hafa 10 efstu á peningalista Symetra Tour verið kynntar sem og þær sem jafnar voru í 45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, en það eru þær Karen Chung, frá Bandaríkjunum; P.K. Kongkraphan frá Thaílandi; Louise Strahle frá Svíþjóð og Robyn Choi frá Ástralíu.

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir tók þátt í lokaúrtökumóti LPGA en varð ekki meðal efstu 45 og náði því ekki að endurnýja kortið sitt og fastan keppnisrétt á LPGA næsta keppnistímabil.

Það voru 6 stúlkur, sem deildu 39. sætinu og hafa þær einnig verið kynntar en það eru: Lee Lopez, Sandra Changkija, Lauren Coughlin og Stephanie Kono frá Bandaríkjunum; Pajaree Anannarukarn frá Thaílandi og Guilia Molinaro frá Ítalíu. Þessar 6 léku allar á samtals 9 yfir pari á lokaúrtökumótinu, hver. Síðan hafa þær sem deildu 36. sætinu verið kynntar en það eru: Suzuka Yamaguchi frá Japan; Louise Ridderström frá Svíþjóð og Sophia Popov frá Þýskalandi, en þær léku á samtals 8 yfir pari. Eins hafa þær 3 verið kynntar sem deildu 33. sætinu og léku á samtals 7 yfir pari en það eru Dori Carter og Lori Beth Adams frá Bandaríkjunum og Laetitia Beck frá Ísrael og sú sem var ein í 32. sætinu og lék á samtals 6 yfir pari, en það er María Fassi, frá Mexíkó.

Þær stúlkur sem deildu 27. sætinu á samtals 5 yfir pari voru Kristy McPherson, Cheyenne Knight, Sara Burnham og Lilia Vu frá Bandaríkjunum og Lily Muni He frá Kína.

Fjórar deildu 23. sæti og léku allar á samtals 4 yfir pari, hver, en þetta eru þær: Gemma Dryburgh, frá Skotlandi; Jing Yan og Xiyu Lin frá Kína og Lauren Kim frá Bandaríkjunum. Þær hafa allar verið kynntar nema Jing Yan, sem kynnt verður í dag.

Jing Yan byrjaði að spila golf 4 ára.

Hún segir pabba sinn hafa haft mestan áhrif á feril sinn vegna þess að hann vann í mörg ár sem fréttamaður hjá ESPN og hann hvatti hana til að byrja í golfi og gerði henni kleift að hitta marga af uppáhalds stjörnum Yan í golfi þ.á.m. Tiger Woods og Anniku Sörenstam.

Yan hefir gaman að kvikmyndum.

Hún komst í gegnum úrtökumót LPGA í fyrstu tilraun sinni 2015 og hætti því í háskóla sem hún var byrjuð í þ.e. Unversity of Washington til þess að geta orðið atvinnumaður í golfi.

Það ár 2015 spilaði Yan í 14 mótum og náði niðurskurði 7 sinnum. Besta árangri sínum T-11 náði hún á Kingsmill Championship Presented by JTBC.

Sem stendur er Yan nr. 338 á Rolex-heimslistanum og er með fullan spilarétt á LPGA 2019.