Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 23. 2018 | 10:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2019: Isi Gabsa (2/58)

Hér verða líkt og á undanförnum árum kynntar þær stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA fyrir 2019 keppnistímabilið.

Þetta eru þær sem urðu í 45. sæti eða voru jafnar í 45. sæti á lokaúrtökumóti LPGA og efstu 10 á peningalista 2. deildarinnar þ.e. Symetra Tour.

Byrjað verður að kynna 10 efstu á peningalista Symetra Tour og síðan 45 efstu og þær sem jafnar voru í 45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA. Í ár voru 48 stúlkur sem komust á LPGA gegnum lokaúrtökumótið og þær ásamt þeim 10 sem efstar urðu á peningalista Symetra Tour eða alls 58 stúlkur verða því kynntar hér á næstu mánuðum.

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir tók þátt í lokaúrtökumóti LPGA en varð ekki meðal efstu 45 og náði því ekki að endurnýja kortið sitt og fastan keppnisrétt á LPGA næsta keppnistímabil.

Sú sem fyrst verður kynnt hér er stúlka sem varð í 9. sæti á peningalista Symetra Tour og er þannig komin með fullan spilarétt á LPGA. Þetta er Isabell Gabsa, en hún vann sér inn $60,386 í verðlaunafé í mótum Symetra Tour. Áður hefir Dana Finkelstein (10. sæti9 verið kynnt.

Isabell Gabsa (alltaf kölluð Isi) er fædd 7. júní 1995 í München, Þýskalandi og því 23 ára. Foreldrar Isi heita Günther og Sabine og hún á tvö systkini: Pascal og Elia. Isi byrjaði 4 ára að spila golf en golfvöllur var í 5 mínútna fjarlægð frá heimili hennar.

Isi hefir verið í þýska golflandsliðinu frá árinu 2010 og á LET frá árinu 2012. Isi gerðist atvinnumaður í golfi 1. janúar 2013.

Uppáhaldsgolfvöllur Isi er TPC Sawgrass Stadion Course. Í pokanum hennar eru: Ping Dræver: Answer; Ping tré: i20; járn: S56; Pútter: Redwood. Isi segist vera betri í langa spilinu en því stutta og meðalhögglengd hennar af teig eru 220 metrar. Lægsti hringur hennar á ferlinum er upp á 67 högg.

Helsta áhugamál Isi utan golfsins er að elda mat og hún segist vera sérfræðingur í að búa til pönnukökur með jarðaberjum. Helsta markmið hennar í lífinu er að verða hamingjusöm.