Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 15. 2019 | 10:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2019: Gemma Dryburgh (34/58)

Hér verða líkt og á undanförnum árum kynntar þær stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA fyrir 2019 keppnistímabilið. Þetta eru þær sem urðu í 45. sæti eða voru jafnar í 45. sæti á lokaúrtökumóti LPGA og efstu 10 á peningalista 2. deildarinnar þ.e. Symetra Tour.

Í ár voru 48 stúlkur sem komust á LPGA gegnum lokaúrtökumótið og síðan einnig þær 10, sem efstar urðu á peningalista Symetra Tour eða alls 58 stúlkur.

Hér hafa 10 efstu á peningalista Symetra Tour verið kynntar sem og þær sem jafnar voru í 45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, en það eru þær Karen Chung, frá Bandaríkjunum; P.K. Kongkraphan frá Thaílandi; Louise Strahle frá Svíþjóð og Robyn Choi frá Ástralíu.

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir tók þátt í lokaúrtökumóti LPGA en varð ekki meðal efstu 45 og náði því ekki að endurnýja kortið sitt og fastan keppnisrétt á LPGA næsta keppnistímabil.

Það voru 6 stúlkur, sem deildu 39. sætinu og hafa þær einnig verið kynntar en það eru: Lee Lopez, Sandra Changkija, Lauren Coughlin og Stephanie Kono frá Bandaríkjunum; Pajaree Anannarukarn frá Thaílandi og Guilia Molinaro frá Ítalíu. Þessar 6 léku allar á samtals 9 yfir pari á lokaúrtökumótinu, hver. Síðan hafa þær sem deildu 36. sætinu verið kynntar en það eru: Suzuka Yamaguchi frá Japan; Louise Ridderström frá Svíþjóð og Sophia Popov frá Þýskalandi, en þær léku á samtals 8 yfir pari. Eins hafa þær 3 verið kynntar sem deildu 33. sætinu og léku á samtals 7 yfir pari en það eru Dori Carter og Lori Beth Adams frá Bandaríkjunum og Laetitia Beck frá Ísrael og sú sem var ein í 32. sætinu og lék á samtals 6 yfir pari, en það er María Fassi, frá Mexíkó.

Þær stúlkur sem deildu 27. sætinu á samtals 5 yfir pari voru Kristy McPherson, Cheyenne Knight, Sara Burnham og Lilia Vu frá Bandaríkjunum og Lily Muni He frá Kína.

Í dag verður haldið áfram að kynna þær 4 sem deildu 23. sæti og léku allar á samtals 4 yfir pari, hver, en þetta eru þær: Gemma Dryburgh, frá Skotlandi; Jing Yan og Xiyu Lin frá Kína og Lauren Kim frá Bandaríkjunum. Lauren Kim hefir þegar verið kynnt og í dag er það Gemma Dryburgh.

Gemma Dryburgh fæddist í Aberdeen, Skotlandi 11. júní 1993 og er því 25 ára.

Hún er 1,65 m á hæð.

Gemma byrjaði að spila golf 4 ára og það var pabbi hennar sem kenndi henni og vakti áhuga hennar á golfinu.

Gemma hins vegar var í allskyns íþróttum þegar hún var að vaxa úr grasi og einbeitti sér ekki að golfinu fyrr en um 15 ára aldurinn, þegar fjölskyldan fluttist til Flórída og hún nam golf í IMG Academy.

Gemma var í bandaríska háskólagolfinu og spilaði með liði Tulane háskóla í Louisiana.

Hápunktur á áhugamannsferli Gemmu var þegar hún spilaði í Curtis Cup með liði Íra&Breta.

Gemma gerðist atvinnumaður í golfi 2014 og spilar bæði á LET og LPGA.

Fræðast má nánar um Gemmu með því að skoða vefsíðu hennar með því að SMELLA HÉR: