
Nýju stúlkurnar á LPGA 2018: Nannette Hill (23/49)
Það voru 49 stúlkur sem hlutu spilarétt á LPGA mótaröðina 2018 í gegnum lokaúrtökumót LPGA sem fram fór á LPGA International vellinum í Flórída dagana 28. nóvember – 3. desember s.l.
Það voru 29 sem hlutu takmarkaðan spilarétt og 20 efstu stúlkurnar sem hlutu kortið sitt á LPGA þ.e. fullan þátttökurétt í öllum mótum LPGA 2018.
Venja hefir verið undanfarin ár að kynna „nýju“ stúlkurnar á LPGA og líkt og áður verður byrjað að kynna þær sem rétt sluppu inn á mótaröðina og hlutu takmarkaðan spilarétt endað á þeirri sem sigraði í lokaúrtökumótinu, en það var japanska stúlkan Nasa Hataoka.
Nú verða kynntar þær 7 stúlkur, sem deildu 23. sætinu. Alison Walshe og Leticia Ras-Anderica frá Þýskalandi hafa þegar verið kynntar og í dag er það Nannette Hill.

Nannette Hill
Nannette Hill fæddist 3. apríl 1987 og er dóttir William og Nannette Hill. Nannette er því 30 ára. Hún byrjaði að spila golf 6 ára og segir föður sinn vera þá manneskju sem hafi haft mest áhrif á feril sinn.
Líkt og Ólafía Þórunn okkar Kristinsdóttir spilaði Hill í bandaríska háskólagolfinu með liði Wake Forest en lesa má allt um afrek hennar þar með því að SMELLA HÉR: Þær Ólafía Þórunn voru þó aldrei liðsfélagar því Nannette er aðeins eldri en Ólafía.
Hill komst á LPGA í fyrstu tilraun sinni. Meðal áhugamála hennar eru að spila tennis, hjólreiðar og vera með fjölskyldu og vinum og hundunum sínum.
Árið 2009 gerðist Nannette atvinnumaður í golfi og varð í 25. sæti á úrtökumóti LPGA og vann sér inn kortið sitt á LPGA í fyrstu tilraun sinni.
Árið 2010 sigraði Nannette á City of Hammond Classic á the LPGA Futures Tour.
Árið 2011 var besti árangur hennar á LPGA 66. sætið á LPGA Founders Cup.
Á árunum 2012-2014 lék Nannette á Symetra Tour, en sneri aftur á LPGA 2015.
- febrúar. 23. 2021 | 22:00 Tiger lenti í bílslysi í Genesis GV80
- febrúar. 1. 2021 | 08:00 Evróputúrinn: Casey sigraði á Omega Dubai Desert Classic
- janúar. 31. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Justin Timberlake – 31. janúar 2021
- janúar. 30. 2021 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (5/2021)
- janúar. 30. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Payne Stewart ——- 30. janúar 2021
- janúar. 29. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Erlingur Snær Loftsson – 29. janúar 2021
- janúar. 29. 2021 | 14:45 Evróputúrinn: Detry leiðir í hálfleik á Omega Dubai Desert Classic
- janúar. 28. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Þórður Sigurel Arnfinnsson – 28. janúar 2021
- janúar. 28. 2021 | 12:00 Greg Norman selur „húsið“ sitt í Flórída
- janúar. 27. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Bryce Moulder og Mike Hill – 27. janúar 2021
- janúar. 26. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Karine Icher —— 26. janúar 2021
- janúar. 26. 2021 | 07:30 PGA Championship fer fram í Southern Hills 2022 í stað Trump Bedminster
- janúar. 26. 2021 | 06:00 Þjálfarinn Claude Harmon III segir aðskilnaðinn við fv. nemanda sinn Brooks Koepka „hrikalegan“
- janúar. 25. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Heimir Hjartarson, Svandís Thorvalds og Brynja Sigurðardóttir – 25. janúar 2020
- janúar. 25. 2021 | 05:00 Hvað var í sigurpoka Kim?