Nýju stúlkurnar á LPGA 2018: Maude Aimee Leblanc (6/49)
Það voru 49 stúlkur sem hlutu spilarétt á LPGA mótaröðina 2018 í gegnum lokaúrtökumót LPGA sem fram fór á LPGA International vellinum í Flórída dagana 28. nóvember – 3. desember s.l.
Það voru 29 sem hlutu takmarkaðan spilarétt og 20 efstu stúlkurnar sem hlutu kortið sitt á LPGA þ.e. fullan þátttökurétt í öllum mótum LPGA 2018.
Venja hefir verið undanfarin ár að kynna „nýju“ stúlkurnar á LPGA og líkt og áður verður byrjað að kynna þær sem rétt sluppu inn á mótaröðina og hlutu takmarkaðan spilarétt endað á þeirri sem sigraði í lokaúrtökumótinu, en það var japanska stúlkan Nasa Hataoka.
Nú verða kynntar þær 13 stúlkur, sem deildu 32. sætinu og hlutu takmarkaðan spilarétt og verður byrjað á kanadísku stúlkunni Maude Aimee Leblanc.
Maude Aimee LeBlanc fæddist 14. febrúar 1989 og er því 28 ára. Hún er dóttir hjónanna Merlyne Laflamme og Gaston LeBlanc og á 2 bræður Gaston LeBlanc, Jr. og Yannick Laflamme og eina systur Leilu.
Maude Aimee byrjaði að spila golf 5 ára. Hún er fremur hávaxinn kvenkylfingur eða 1,85 m á hæð.
Hún segir pabba sinn hafa verið þann aðila sem hafði mest áhrif á golfferil sinn.
Meðal áhugamála utan golfsins er að spila tennis, horfa á kvikmyndir, verja tíma með fjölskyldu og vinum og fara í vínsmakkanir.
Hún segir það að hafa leikið sér með ljónsunga í Suður-Afríku meðal þess svalasta sem hún hafi gert í lífi sínu.
Maude Aimee spilaði í bandaríska háskólagolfinu með liði Purdue á árunum 2007-2010 og má sjá afrek hennar þar með því að SMELLA HÉR:
Í Purdue lagði hún stund á sálfræði en útskrifaðist ekki því hún komst á LPGA í fyrstu tilraun, árið 2011 eftir að hún gerðist atvinnumaður í golfi það ár.
Nokkrar fréttir hafa verið um það hversu skapmikil Maude-Aimee er og hefir henni m.a. verið vikið úr golfmótum vegna óíþróttamannslegrar framkomu – Sjá m.a. grein um það með því að SMELLA HÉR:
Frá 2012 hefir Maude Aimee ýmist verið með fullan eða takmarkaðan spilarétt á LPGA eða spilað á Symetra Tour þ.e. 2. deild kvennagolfsins í Bandaríkjunum.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
