Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 28. 2018 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2018: Manon Molle (23/25)

Golf 1 mun nú kynna þær stúlkur sem hlutu fullan keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna, en lokaúrtökumótið fór fram í Marokkó í 16.-20. desember 2017.

Leiknir voru 5 hringir og voru stúlkurnar 60 að þessu sinni sem kepptu um kortið sitt, þ.á.m. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK.

Það voru 25 efstu stúlkurnar sem komust á LET og baráttan í ár var hörð.

T.a.m. voru 6 stúlkur jafnar í 24. sætinu á samtals 4 undir pari, 356 höggum og varð að koma til bráðabana milli þeirra því aðeins tvö sæti voru í boði þ.e. það 24. og 25.

Það voru tvær norskar stúlkur sem sigruðu í bráðabananum þ.e. þær Celine Borge og Madeleine Stavnar (báðar með örn á par-5 18. holuna þar sem úrslitin réðust).

Þær 4, sem sátu eftir með sárt ennið voru hin spænska Maria Palacios Siegenthaler; Julie Aime frá Frakklandi; Kiran Matharu frá Englandi og Tiia Koivisto frá Finnlandi.

Þessar tvær heppnu stúlkur, sem unnu í bráðabanaum um 24. og 25. sætin hafa nú verið kynntar og eins stúlkurnar 5 sem urðu í 19.sæti en það eru Ariane Provot frá Frakklandi; Katja Pogacar frá Slóveníu; Ainil Bakar frá Bandaríkjunum; Sideri Vanova frá Tékklandi og Lucrezia Colombotto Rosso frá Ítalíu. Eins hafa þrjár stúlkur sem urðu í 16. sæti á samtals 6 undir pari, 354 höggum verið kynntar: Elia Folch frá Spáni; Cloe Frankish frá Englandi og Sanna Nuutinen frá Finnlandi. Næst voru þær sem deildu 14. sætinu kynntar: Mireia Prat og Piti Martinez Bernal, en báðar léku þær á samtals 7 undir pari, 353 höggum. Fimm stúlkur deildu 9. sætinu, en það eru: Julía Engström og Cajsa Persson frá Svíþjóð; Vikki Laing frá Skotlandi; Laura Sedda frá Ítalíu og Elína Nummenpää frá Finnlandi. Þær léku allar á samtals 8 undir pari, 352 höggum. Loks vour þær 3 sem deildu 6. sætinu kynntar, en það eru: Jeanette Marita Engzelius frá Noregi; Nína Pegova frá Rússlandi og Silvia Bañon frá Spáni, en þær léku allar á 9 undir pari, 351 höggi. Loks varð Karoline Lund frá Noregi, ein í 5. sæti á samtals 9 undir pari, 351 höggi ( 73 67 69 72 70) og Gabriella Cowley frá Englandi, varð ein í 4. sæti á samtals 10 undir pari, 350 höggum (74 67 70 72 67). Þær hafa allar verið kynntar

Nú á bara eftir að kynna 3 stúlkur, þær, sem voru í efstu 3 sætunum, en það eru: ; Carmen Alonso frá Spáni og Manon Molle frá Frakklandi, sem deildu 2. sætinu á samtals 14 undir pari, 346 höggum; Alonso (70 74 69 68 65) og Molle (68 71 70 69 68) og síðan sigurvegarinn Casey Danielson frá Bandaríkjunum einnig á 14 undir pari, 346 höggum (67 66 71 72 70), en hún vann hinar tvær í bráðabana um 1. sætið.

Í dag verður Manon Molle kynnt sem varð T-2.

Manon Molle fæddist 10. nóvember 1994 og á því sama afmælisdag og Andri Þór Björnsson, GR.  Molle er 25 ára.

Molle var í menntaskóla í CNED, í Rennes. Meðan hún var enn í menntaskóla tók Molle þátt í Junior Ryder Cup og European Team Championships.

Hún lék í bandaríska háskólagolfinu með liði the University of New Mexico, þ..e liði Úlfanna, Lobos. Sjá má um afrek Molle með Úlfunum með því að SMELLA HÉR: 

Uppáhaldskylfingur Molle er Graeme McDowell

Uppáhaldsmatur: Molle segist elska „allan mat.“

Uppáhaldskvikmynd er „Dirty Dancing.“

Helstu áhugamál Molle eru að spila tennis og hlusta á tónlist.

Molle er kölluð „Mimo.“

Molle gerðist atvinnumaður í golfi 1. janúar 2018.